Fréttir
Heimsókn til forseta Íslands í tengslum við árlegan samráðsfund aðildarríkja EPO

António Campinos, forstjóri Evrópsku einkaleyfastofunnar, heimsótti forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, á Bessastaði miðvikudaginn 18. júní síðastliðinn. Þau ræddu m.a. einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja til EPO, mikilvægi þess að íslensk fyrirtæki sæki um skráningu á hugverkum sínum og starfsemi og útflutning íslenskra nýsköpunarfyrirtækja.
Heimsóknin var í tengslum við árlegan samráðsfund aðildarríkja EPO og afhendingu Hugvitsverðlauna ungra frumkvöðla í Hörpu sama dag. Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar og Steve Rowan, framkvæmdastjóri einkaleyfisveitinga hjá EPO, fylgdu Campinos á Bessastaði.
Samráðsfundinn í Hörpu sóttu forstjórar og aðrir stjórnendur hugverkastofa 39 aðildarlanda EPO. Umræðuefni fundarins að þessu sinni var fjármögnun nýsköpunar og einkaleyfi. Borghildur og Sigrún Brynja ávörpuðu fundinn auk þess sem Guðmundur Reynaldsson, einkaleyfalögfræðingur hjá Flintó, Carbfix og Controlant og Helga Valfells frá Crowberry Capital tóku þátt í pallborðsumræðum. Hátt í 300 manns sóttu Ísland heim vegna þessara tveggja viðburða.
Í opnunarerindi sínu þakkaði Borghildur Campinos og EPO fyrir að velja að halda fundinn á Íslandi. Hún sagði að einkaleyfi væri ekki eingöngu lögfræðilegt hugtak heldur verðmæt, viðskiptaleg eign. Einkaleyfi laði að fjárfestingu, opni leiðir inn á alþjóðlega markaði og gefi fjármögnunaraðilum skýr skilaboð um áreiðanleika og fagmennsku. Þess vegna vinni hugverkastofur ekki aðeins við að taka við og fara yfir umsóknir um skráningu einkaleyfa og annarra hugverkaréttinda, heldur styðji uppfinningamenn og fyrirtæki við að nýta hugverkarétt á skilvirkan hátt til viðgangs og vaxtar.
Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins, rakti að Íslandi hafi verið aðili að Evrópsku einkaleyfastofunni í rúm tuttugu ár. Frá því að landið hafi gengið til liðs við EPO árið 2004 hafi samstarfið styrkst jafnt og þétt og aðildin sé nú hornsteinn í þátttöku landsins í evrópsku nýsköpunarumhverfi. Íslenskir frumkvöðlar og vísindamenn, hvort sem þeir starfi á sviði heilbrigðistækni, líftækni, lyfja, sjálfbærrar orku, matvælatækni eða hönnunar, reiði sig á öflugt og áreiðanlegt hugverkaréttarkerfi til að breyta hugmyndum sínum í verðmæti.
Í upphafserindi sínu lagði António Campinos áherslu á mikilvægi þess að efla fjármögnun með stuðningi hugverkaréttinda. Til að koma tækni á markað þurfi kerfi sem viðurkenni hugverkarétt sem raunverulega fjárhagslega eign. Fundurinn veiti tækifæri til að kortleggja bestu starfsvenjur og skoða þau brýnu málefni sem mörg aðildarríki EPO standi frammi fyrir. Markmiðið sé að vinna með atvinnulífinu og öðrum hagaðilum að því að byggja upp traust kerfi sem styðji við uppfinningamenn og hjálpi þeim að umbreyta hugmyndum í fjárfestingarhæfar lausnir, tilbúnar á markað.

