Fréttir

Heppinn þátttakandi í vörumerkjaleik vann kvöldverð

Eiríkur Sigurðsson02. júní 2023Viðburðir
Image (1)

Í tengslum við ÍMARK daginn í vor efndum við til vörumerkjaleiks þar sem þátttakendum gafst færi á að kanna þekkingu sína á nokkrum nýskráðum vörumerkjum. Hátt í 3000 manns tóku þátt í leiknum og í vikunni drógum við út heppinn þátttakanda sem hlýtur að launum kvöldverð fyrir tvö á Restaurant Borg.

Vinningshafinn er Harpa Hlín, sérfræðingur á öryggis- og umhverfissviði Norðuráls. Kristinn Heiðmar kíkti við í morgun og náði í gjafabréfið fyrir hana og kvaðst aðspurður vonast til að verða boðið út að borða á Borgina. Við óskum Hörpu Hlín kærlega til hamingju.

Það er enn hægt að spreyta sig á leiknum þó ekki sé hægt að skrá sig í verðlaunapottinn.