Fréttir
Hugverkaréttindi rædd í Nýsköpunarvikunni

Hugverkastofan stóð fyrir tveimur viðburðum í nýliðinni Nýsköpunarviku (Iceland Innovation Week). Báðir voru mjög vel sóttir enda var boðið upp á fjölmörg áhugaverða erindi um hugverkaréttindi og tengd málefni.
Í Grósku var fjallað um vörumerki í nýsköpun á viðburðinum Branding Innovation á þriðjudaginn í samstarfi við Samtök iðnaðarins og ÍMARK. Þar deildu fulltrúar íslenskra nýsköpunarfyrirtækja frásögnum af því hvað þarf til að byggja upp vörumerki sem vekur athygli – bæði heima og erlendis, hvernig vörumerki og vörumerkjaskráning styðja við vöxt og hvers vegna það skiptir miklu máli að tryggja réttindi snemma.
Fyrirlesarar voru: Arndís Huld Hákonardóttir, varaformaður ÍMARK; Sigurður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri vörumerkja og hönnunar hjá Bláa lóninu; Eyrún Jónsdóttir; forstöðumaður leikjaútgáfu hjá CCP; Egill Gauti Þorkelsson, stofnandi og markaðsstjóri Eimverks; Unnur Ársælsdóttir, markaðsstjóri Smitten; Hólmfríður Kristín Árnadóttir, markaðsstjóri Vaxa og Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins. Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar stýrði fundinum.
Á fimmtudeginum var kastljósinu svo beint að hugverkaréttindum í tónlist á viðburðinum Feel the Beat of IP sem Hugverkastofan, Tónlistarmiðstöð, STEF og Bird RVK stóðu að í sameiningu á Bird. Á viðburðinum var m.a. fjallað um hvað tónlistarmenn ættu að skrá sem vörumerki, uppbyggingu á vörumerkjunum BRÍET og Iceland Airwaves, einkaleyfi, gervigreind, nýsköpun og fleira. Þá lék Salóme Katrín nokkur frumsamin lög.
Fyrirlesarar voru Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar; María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar; Ólafur Bjarki Bogason, framkvæmdastjóri Genki Instruments; Sindri Ástmarsson, verkefnastjóri Iceland Airwaves og sviðsstjóri viðburða hjá Senu; Soffía Kristín, umboðsmaður og meðeigandi Iceland Sync Creative og Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs. Fundarstjóri var Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar og DJ Silja Glömmi sá um tónlist á Happy Hour að viðburðinum loknum.
Við þökkum gestum okkar kærlega fyrir komuna, samstarfsaðilum fyrir samstarfið og fyrirlesurum fyrir áhugaverð erindi. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá viðburðunum.

























