Fréttir

Hugverkavernd og fjárfestingar í nýsköpun á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi

Eiríkur Sigurðsson05. nóvember 2026Viðburðir
Vefur26 1920 1080 (2)

Hugverkastofan býður til ráðstefnu um hugverkavernd og fjárfestingar í nýsköpun á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi, í Kaldalóni Hörpu, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9:00-13:00.

Á ráðstefnunni verður fjallað um hvernig hugverkaréttindi skapa verðmæti, móta fjárfestingarákvarðanir og eru grunnur að vexti fyrirtækja og skölun á erlendum mörkuðum. Alþjóðlegir sérfræðingar og fulltrúar íslenskra nýsköpunarfyrirtækja, fjárfesta, fjárfestingasjóða og banka ræða tækifæri og hindranir í fjárfestingum og fjármögnun, þar á meðal veðsetningu hugverkaréttinda.

Ráðstefnan er haldin í tilefni 35 ára afmælis Hugverkastofunnar, í samstarfi við Nýsköpunarsjóðinn Kríu, Arion banka og Evrópsku einkaleyfastofuna (EPO).

Fundarstjóri: Katrín Júlíusdóttir

Öll velkomin

Dagskrá

8:30 Morgunverður

9:00 Setning
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar

9:05 Ávarp
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra

9:10 Nellie Simon, framkvæmdastjóri stoðþjónustu hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO)
From patents to scale-up: the EPO’s Financing Innovation programme

9:30 Björn Jónsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri rekstrar, Hefring Marine
Mikilvægi einkaleyfa fyrir skölun íslenskra nýsköpunarfyrirtækja á erlendum markaði

9:45 Bjarney Harðardóttir, eigandi og forstjóri vörumerkis, 66°N
Hvernig vörumerki og hönnun skapa verðmæti á alþjóðlegum markaði

10:00 Benedikt Skúlason, stofnandi og forstjóri, LAUF Cycles
Reynsla LAUF af því að sækja íslenska fjármögnun með veði í hugverkaréttindum

10:15 Kaffihlé

10:45 André Rocha, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar, Embla Medical
Innovation and IP as a growth driver in medical industry

11:00 Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður hjá Arion banka
Fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja

11:15 Sölvi Þrastarson, leiðtogi tækniteymis, Treble Technologies
Einkaleyfi sem grunnur að fjármögnun og alþjóðlegu samstarfi

11:30 Pallborð: Hugverkaréttindi og fjárfestingar

Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður Arion banka
Björn Jónsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri rekstrar, Hefring Marine
Óskar Fannar Vilmundarson, fjárfestingastjóri, Brunnur Ventures

12:00 Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
Samantekt og fundarslit

12:10 Léttur hádegisverður