Fréttir

Hugvitsverðlaun ungra frumkvöðla veitt í Hörpu 18. júní

Eiríkur Sigurðsson10. júní 2025Alþjóðlegt samstarfViðburðir
Young Inventor Prize

Tíu merkilegar uppfinningar ungra frumkvöðlar, hvaðanæva að úr heiminum, verða kynntar á verðlaunahátíð Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) í Hörpu, 18. júní næstkomandi. Þá verða Hugvitsverðlaun ungra frumkvöðla (Young Inventors Prize) veitt í fjórða sinn. Samhliða verðlaunahátíðinni verður árlegur samráðsfundur 39 aðildarlanda Evrópsku einkaleyfastofunnar, haldinn í Hörpu. Fundinn sækja forstjórar hugverkastofa aðildarlandanna ásamt fylgdarliði og reikna má með að hátt í 300 manns sæki Ísland heim vegna þessara viðburða.

Með Hugvitsverðlaunum ungra frumkvöðla heiðrar Evrópska einkaleyfastofan vísindafólk og frumkvöðla undir þrítugu sem hafa þróað uppfinningar sem stuðla að framgangi sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið með verðlaununum er einnig að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar, uppfinninga og einkaleyfa. Tíu einstaklingar og teymi sem tilnefnd eru til verðlaunanna og hljóta viðurkenningar sem „frumkvöðlar morgundagsins“ voru valin úr yfir 450 tilnefningunum. Dómnefnd, sem m.a. er skipuð uppfinningamönnum sem tilnefndir hafa verið til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna (European Inventor Award), veitir sérstök verðlaun í þremur flokkum. Verðlaunin Heimssmiðir (World Builders) eru veitt frumkvöðlum sem þróað hafa lausnir sem auka sjálfbærni og styðja við hringrásarhagkerfi á heimsvísu. Samfélagslæknar (Community Healers) fá verðlaun fyrir verkefni sem tryggja jafnan aðgang að nauðsynlegum auðlindum og Varðmenn náttúrunnar (Nature Guardians) fá verðlaun fyrir viðleitni til að vernda vistkerfi. Að auki verður kynntur sigurvegari í vali fólksins sem almenningur getur kosið í opinni atkvæðagreiðslu á netinu.

Athöfninni, sem fram fer í Hörpu þann 18. júní kl. 16, verður streymt í beinni útsendingu.

Frumkvöðlarnir tíu sem tilnefndir eru til verðlaunanna eru:

Fyrir aukið geymsluþol ávaxta
Sandra Namboozo og Samuel Muyita frá Úganda hafa þróað litla poka úr niðurbrjótanlegu efni sem gefa frá sér rokgjörn efni sem hægja á þroska ávaxta, draga þannig úr matarsóun og bæta lífsafkomu smábænda.

Fyrir rafeindabúnað úr pappa
Austurríski iðnhönnuðurinn Franziska Kerber hefur þróað endurvinnanlegt ytra byrði fyrir rafeindatæki á borð við beina (router) og reykskynjara sem auðveldar endurheimt verðmætra málma að liðnum líftíma tækjanna.

Fyrir umhverfisvæn þéttiefni fyrir flugiðnaðinn
Filippseyski flugverkfræðingurinn Mark Kennedy Bantugon hefur þróað nýtt þéttiefni fyrir flugiðnaðinn úr afgangstrjákvoðu Pili trjáa sem er í senn umhverfisvænna og laust við ýmis eiturefni margra þeirra þéttiefna sem notuð eru í dag.

Fyrir endurvinnslu sjaldgæfra málma
Fransk-bandaríski efnafræðingurinn Marie Amélie Perrin hefur þróað aðferð til að enduvinna evrópín úr förguðum flúrlömpum sem gerir endurvinnslu þeirra einfaldari og hættuminni.

Fyrir föngun mengunarefna til að bæta loftgæði
Kólumbíski frumkvöðullinn Mariana Pérez hefur hannað lofthreinsikerfi sem fjarlægir koltvísýring, köfnunarefnisdíoxíð og brennisteinsdíoxíð úr andrúmsloftinu og breytir í lífniðurbrjótanleg efni.

Fyrir hönnun ensíma með gervigreind
Litháísku vísindamennirnir Laurynas Karpus, Vykintas Jauniškis og Irmantas Rokaitis hafa þróað kerfi sem nýtir gervigreind til að hanna ný og sérsniðin ensím fyrir lífefnaframleiðslu og lyfjafyrirtæki.

Fyrir snjallmerki til að draga úr matarsóun
Spænsku uppfinningamennirnir Pilar Granado, Pablo Sosa Domínguez og Luis Chimeno hafa búið til lífbrjótanlegt snjallmerki sem nemur ferskleika matvæla í rauntíma og dregur með því úr óþarfa matarsóun.

Fyrir kolefnisföngun fyrir skip
Verkfræðingarnir Alisha Fredriksson frá Svíþjóð og Bretlandi og Roujia Wen frá Kína smíðuðu kolefnisfangara sem bindur koltvísýring í kalksteini og dregur þannig úr losun frá skipum.

Fyrir að breyta koltvísýringi í verðmætt hráefni
Bandarísku vísindamennirnir og tvíburasysturnar Neeka og Leila Mashouf þróuðu ferli til að umbreyta koltvísýringi frá iðnaðarstarfsemi í sellulósakvoðu sem m.a. nýtist í gerð sjálfbærra og niðurbrjótanlegra hráefna.

Fyrir snjallari hálfleiðaraframleiðsla
Slóvenski vísindamaðurinn Teja Potočnik hefur þróað hugbúnað til að auðvelda framleiðslu á hálfleiðurum.

Allir tíu frumkvöðlarnir sem tilnefndir eru til verðlaunanna fá 5.000 evrur að launum. Verðlaunahafarnir þrír fá 15.000 evrur að auki í verðlaun. Vinningshafi í vali fólksins, valinn með almennri atkvæðagreiðslu á netinu, fær 5.000 evrur aukalega. Athöfninni verður streymt beint frá Íslandi um allan heim þann 18. júní 2025. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, situr í dómnefnd fyrir verðlaunin.

Evrópska einkaleyfastofan stofnaði til sérstakra verðlauna fyrir unga frumkvöðla árið 2022 en þau hafa fram að þessu verið veitt á verðlaunaafhendingu Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna (European Inventor Award), sem eru ein virtustu nýsköpunarverðlaun Evrópu og hafa verið veitt af EPO frá árinu 2006. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis var tilnefndur til þeirra verðlauna í fyrra og Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, stofnendur Oculis, árið 2023. Frá og með árinu í ár verða Evrópsku nýsköpunarverðlaunin og Hugvitsverðlaun ungra frumkvöðla veitt til skiptis annað hvert ár.

Um EPO

Evrópska einkaleyfastofan (European Patent Office, EPO) var stofnuð með það að markmiði að efla samstarf um einkaleyfi í Evrópu. Hjá EPO starfa 6.300 manns og er stofnunin ein stærsta alþjóðastofnun Evrópu. Höfuðstöðvar hennar eru í München, en auk þess eru starfræktar skrifstofur í Berlín, Brussel, Haag og Vín. Með miðlægu einkaleyfisferli EPO getur uppfinningafólk fengið einkaleyfisvernd í allt að 46 löndum, sem nær til um 700 milljóna manna markaðar. EPO er einnig leiðandi stofnun í heiminum þegar kemur að einkaleyfaupplýsingum og einkaleyfaleit. Ísland gerðist aðili að EPO árið 2004.