Fréttir

Hundruð háskólanema í vísindaferð Gulleggsins

Eiríkur Sigurðsson31. október 2022Viðburðir
Visindaferd22

Hugverkastofan tók þátt í stærstu vísindaferð ársins á föstudaginn. Þá buðu Gulleggið og samstarfsaðilar háskólanemum í partý í Grósku. Boðið tókst frábærlega og hundruðir háskólanema kíktu við á bás Hugverkastofunnar, þáðu popp frá Ástríku og spjölluðu við starfsmenn um einkaleyfi, vörumerki og hönnun. Einhver þeirra sem litu við eiga klárlega eftir að gera garðinn frægan sem frumkvöðlar í nánustu framtíð og fengu þarna mikilvæga nasasjón af verndun hugverkaréttinda.

Gulleggið er haldið af Klak – Icelandic Startups. Um er að ræða stærstu og elstu frumkvöðlakeppni landsins sem fer nú fram í 16. skipti. Meðal fyrirtækja sem tekið hafa sín fyrstu skref í Gullegginu má nefna Controlant, Meniga, PayAnalytics og Solid Clouds.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ávarpaði gesti í hátíðarsal Grósku, bakhjarlar Gulleggsins voru með stuttar kynningar og verkefnastjóri Gulleggsins, Ása María Þórhallsdóttir og fulltrúar KLAK kynntu það sem er framundan í Gullegginu.

Úlfur Úlfur með stjörnutvíeykinu Helga Sæmundi Guðmundssyni og Arnari Frey Frostasyni stigu svo á stokk og skemmtu gestum fram eftir kvöldi.

Gulleggið er unnið í samstarfi við Nýsköpunar- og frumkvöðlanefndir HÍ og HR.

Fjölmargir áhugasamir gestir heimsóttu bás Hugverkastofunnar.
Fjölmargir áhugasamir gestir heimsóttu bás Hugverkastofunnar.
Áslaug Arna Sigurbjörnssdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur hjá Hugverkastofunni.
Áslaug Arna Sigurbjörnssdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur hjá Hugverkastofunni.
Hugverkastofan bauð upp á sælkerapopp frá Ástríku.
Hugverkastofan bauð upp á sælkerapopp frá Ástríku.
Eiríkur Sigurðsson samskiptastjóri og Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir lögfræðingur, voru fulltrúar Hugverkastofunnar.
Eiríkur Sigurðsson samskiptastjóri og Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir lögfræðingur, voru fulltrúar Hugverkastofunnar.