Fréttir
Líf og fjör á Vísindavöku

Það var líf og fjör á Vísíndavöku Rannís á laugardaginn og fjölmörg sem kíktu á básinn hjá okkur og kynntu sér einkaleyfavarðar vörur íslenskra nýsköpunarfyrirtækja og hvernig einkaleyfi stuðla að nýsköpun og framgangi rannsókna.
Á bás Hugverkastofunnar sýndum við reiðhjól með sérstökum demparagafli frá Lauf Cycles, höfuðlínukapal með ljósleiðara frá Hampidjan, gervifót frá Össur, sáraroð frá Kerecis og Zirconium nítrít efnahvata frá Atmonia. Takk öll sem kíktuð á básinn hjá okkur og takk nýsköpunafyrirtæki fyrir lánið á vörunum.
