Fréttir

Líf og fjör í vísindaferð Gulleggsins

Eiríkur Sigurðsson16. janúar 2023Viðburðir
IMG 1112

Það var mikið stuð í Grósku á föstudaginn þegar Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, bauð háskólanemum í vísindaferð. Mörg hundruð háskólanemar úr öllum háskólum landsins þáðu boðið. Frumkvöðlar með reynslu gáfu nemunum góð ráð, tónlistarmaðurinn Birnir tryllti lýðinn og boðið var upp á bjór og aðrar góðar veitingar frá Ölgerðinni.

Hugverkastofan var á staðnum enda dyggur samstarfsaðili Gulleggsins. Við gáfum gestum sælkerapopp frá Ástríku til að nasla á með drykkjunum og ræddum við þá um einkaleyfi, vörumerki, hönnun, námsval, evrópsku Pan Seal starfsþjálfunaráætlunina, líffræði, sálfræði og margt fleira. Takk fyrir okkur, þetta var skemmtilegt.