Fréttir
Mikill nýsköpunarkraftur á málþingi Hugverkastofunnar

Það var greinilegt á málþingi Hugverkastofunnar sem haldið var í tilefni alþjóðahugverkadagsins í Hörpu í liðinni viku að það skortir ekkert á nýsköpunarkraft íslenskra kvenna. Á málþinginu héldu fimm stjórnendur úr nýsköpunar- og hugverkageiranum áhugaverð erindi um fjölbreytt efni sem tengist hugverkaréttindum. Mjög vel var mætt á þingið og um sjötíu manns gerðu sér leið í Hörpu til að hlusta á fyrirlesarana, auk þeirra fjölmörgu sem horfðu á það í streymi.
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, opnaði málþingið. Í máli hennar kom m.a. fram að þó að það sé engin spurning að í konum búi mikill nýsköpunarkraftur, þá sé það bersýnilegt þegar rýnt er í tölfræði að samfélagið verði af miklu vegna þess að nýsköpunarkraftur kvenna sé ekki nýttur sem skyldi. Alþjóðahugverkastofnunin WIPO hafi nýlega birt úttekt sem sýni að konur séu aðeins 21% hönnuða sem skráðir eru fyrir hönnun í gagnagrunnum stofnunarinnar. Svipuð úttekt varðandi einkaleyfi sýndi að konur eru aðeins 13% uppfinningamanna sem skráðir eru á einkaleyfaumsóknum. Borghildur sagði þetta sláandi tölur sem einfaldlega verði að laga.
Fyrsta erindi dagsins hélt Tatjana Latinovic, framkvæmdastjóri hugverkadeildar Össurar. Hún talaði um fjölbreytileiki hönnunar fyrir fjölbreytta notendur. Hún fór stuttlega yfir starfsemi Össurar en hjá fyrirtækinu starfa nú um 4.000 manns í 36 löndum. Þá lýsti hún því hvernig Össur notar hönnunarvernd til að vernda hugverkaréttindi sín og hvatti áhorfendur m.a. til að líta eftir gulum einkennislit Össurar á stoðtækjum fatlaðs afreksíþróttafólks.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK Icelandic Startup, kynnti forniðurstöður úr úttekt á kynjaskiptingu þátttakenda í verkefnum KLAKS. Í ljós kom að í verkefnum þar sem fókusinn er á nýsköpun sem komin er stutt á veg er kynjahlutfallið nokkuð jafnt. Í verkefnum þar sem unnið er með lengra komnar og fjárfestingarhæfar viðskiptahugmyndir, sem eru skalanlegar fyrir alþjóðamarkað, hallar hins vegar verulega á konur.
Þriðji fyrirlesari málþingsins var Erla Skúladóttir, hugverkasérfræðingur Auðnu og fyrrverandi stjórnarformaður Lauf cycling. Hún fór yfir sögu Lauf og hvernig viðskiptahugmyndin hefði þróast og breyst frá því að ætla að selja demparagafla fyrir reiðhjól í gegnum dreifiaðila til þess að selja fullbúin reiðhjól eingöngu á netinu. Erla lagði áherslu á að fyrirtækið byggði tilveru sína í raun á einu einkaleyfi á nýstárlegum demparagafli og án þessa einkaleyfis hefði fyrirtækið ekki haft svigrúm til að vaxa og þróast. Þá nefndi hún að formlega væri fyrirtækið nú útskrifað úr flokki sprotafyrirtækja því árssalan væri komin yfir einn milljarð.
Ellen María Bergsveinsdóttir, framkvæmdastjóri Mink Campers spurði í sínu erindi hvort einkaleyfi geti hvatt til sköpunar. Hennar svar var já, því að við þróun nýrrar gerðar Mink Campers hafi beinlínis verið leitað að vandamálum sem hægt væri að leysa og sækja um einkaleyfi á, eins og t.d. varðandi loftun undir dýnum í ferðavögnum. Ellen fór yfir mistök sem gerð voru í upphafi nýsköpunarferils Mink Campers og fólust í að tryggja ekki hugverkaréttindi nægjanlega vel með skriflegum samningum og skráningu. Nú tryggi fyrirtækið hins vegar réttindi sín með einkaleyfum, vörumerkja- og hönnunarskráningum.
Síðasti fyrirlesari málþingsins var Tanya Zharov, yfirlögfræðingur Alvotech. Hún kynnti starfsemi Alvotect og muninn á líftæknilyfjahliðstæðum og hefðbundnum samheitalyfjum. Þá gaf hún gestum innsýn í einkaleyfafrumskóg lyfjageirans þar sem lyfjaframleiðendur leitast við að framlengja einkaleyfavernd á frumlyfjum með einkaleyfaumsóknum fyrir nýjar lyfjablöndur og lyfjaform, nýjar framleiðsluaðferðir og nýjar ábendingar. Hún mætti líka með leynigest, Elínu Edwald, stjórnanda hjá Alvotech (Director of Combination Products and Devices) og doktor í lífefnafræði. Hún er einn uppfinningamanna á einkaleyfisumsókn Alvotech fyrir notendavænan lyfjapenna.
Hugverkastofan þakkar fyrirlesurum málþingsins kærlega fyrir áhugaverð erindi og gestum og áhorfendum á netinu fyrir komuna og innlitið.
#WorldIPday





