Fréttir

Misheppnaður viðburður heppnaðist vel

Si Hugverkastofuvidburdur Grosku 45

Hugverkastofan stóð fyrir misheppnuðum hádegisviðburði á Iceland Innovation Week í síðustu viku ásamt Controlant og Samtökum iðnaðarins. Viðburðurinn heppnaðist vonum framar, margir gestir komu í Grósku, þáðu veitingar og hlustuðu á frumkvöðla og fulltrúa íslenskra nýsköpunarfyrirtækja segja frá margskonar mistökum sem þau hafa gert og klúðri sem þau tóku þátt í. Erindin voru hvert öðru áhugaverðara og gestir fóru heim með dýrmæta þekkingu á mikilvægi þess að leyfa sér að gera mistök, læra af þeim og halda áfram. Það er auðvitað fátt betra en að læra af mistökum annarra, en það er líka mikilvægt að fá það beint í æð frá fólki sem hefur meikað það að við gerum öll mistök, meira að segja ráðherrar.

Hugverkastofan þakkar Controlant og SI fyrir samstarfið, fyrirlesurum fyrir frábær erindi og gestum kærlega fyrir komuna.

Hér að neðan eru nokkrar myndir sem BIG smellti af á viðburðinum.

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant
Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant
Tatjana Latinovic, framkvæmdastjóri hugverkadeildar Össurar
Tatjana Latinovic, framkvæmdastjóri hugverkadeildar Össurar
Ásgeir Örn Ásgeirsson, framkvæmdastjóri tækni hjá Meniga
Ásgeir Örn Ásgeirsson, framkvæmdastjóri tækni hjá Meniga
Ellen María Bergsveinsdóttir, framkvæmdastjóri Mink Campers
Ellen María Bergsveinsdóttir, framkvæmdastjóri Mink Campers
Sandra Mjöll Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar Háskólans og fyrrverandi stofnandi og framkvæmdastjóri Platome biotechnology
Sandra Mjöll Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar Háskólans og fyrrverandi stofnandi og framkvæmdastjóri Platome biotechnology
Sigríður Mogesen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins
Sigríður Mogesen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra