Fréttir
Næsta verðlaunahátíð Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna haldin á Íslandi

Evrópsku nýsköpunarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Möltu 9. júlí síðastliðinn. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, var tilnefndur til verðlauna í flokki stærri fyrirtækja fyrir uppfinningu sína á því hvernig nota má þorskroð til að græða sár.
Evrópsku nýsköpunarverðlaunin eru ein virtustu verðlaun sem veitt eru á sviði nýsköpunar í Evrópu ár hvert en verðlaunin eru veitt af Evrópu einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) fyrir framúrskarandi uppfinningar sem hlotið hafa einkaleyfi í Evrópu.
Upplýsingar um verðlaunahafa er að finna á vef verðlaunanna.
Í lok athafnarinnar á þriðjudaginn var greint frá því (við mikinn fögnuð viðstaddra) að næsta verðlaunahátíð verði haldin á Íslandi. Þá verður sjónum beint sérstaklega að ungum frumkvöðlum og uppfinningum þeirra.
Við hjá Hugverkastofunni hlökkum til að taka á mót stórum hópi ungra evrópskra frumkvöðla næsta vor.








