Fréttir

Nýsköpunarkraftur kvenna - sögur úr hugverkageiranum

Eiríkur Sigurðsson19. apríl 2023Viðburðir
HUG 23007 Hugverkadagurinn 4 3

Þema alþjóðahugverkadagsins í ár er hugverkaréttindi og nýsköpunarkraftur kvenna (Women and IP: Accelerating innovation and creativity). Af því tilefni boðar Hugverkastofan til málþings í hádeginu fimmtudaginn 4. maí kl. 11-13 í Rímu í Hörpu þar sem konur úr hugverkageiranum tala um nýsköpun og hugverkaréttindi.

Fyrirlesarar:Tatjana Latinovic, framkvæmdastjóri hugverkadeildar Össurar
Fjölbreytileiki hönnunar fyrir fjölbreytta notendur

Ásta Sóllilja Guðmundsóttir, framkvæmdastjóri KLAK Icelandic Startups
Nýsköpunarkraftur kvenna – óbeislað afl?

Erla Skúladóttir, hugverkasérfræðingur Auðnu
Lauf – sprotasaga

Ellen María Bergsveinsdóttir, framkvæmdastjóri Mink Campers
Getur einkaleyfi hvatt til sköpunar?

Tanya Zharov, yfirlögfræðingur Alvotech
Hvað er frumlegt við hliðstæður?

Fundarstjóri: Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar

Öll velkomin.
Boðið verður upp á léttar hádegisveitingar.

Streymt verður frá viðburðinum.

Athugið að nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér.

#WorldIPDay