Fréttir

Nýsköpunarþing 2023 - Líf í lífvísindum 26. október

Eiríkur Sigurðsson03. október 2023Viðburðir
Nýsköpunarþing Vefur

Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins bjóða til Nýsköpunarþings 2023 í Grósku 26. október kl. 13:30-15:00. Á þinginu verður kastljósinu beint að nýsköpunarfyrirtækjum sem starfa á sviði líf- og heilbrigðisvísinda.

Öll velkomin.

Upptöku frá þinginu má sjá hér að neðan.

Skráning

Stofnendur og stjórnendur Íslenskrar erfðagreiningar, Kerecis, Alvotech, NOX Medical, Sidekick Health, BIOEFFECT og Oculis munu fjalla um árangur sinna fyrirtækja frá mismunandi sjónarhóli. Öflug nýsköpun á sviði líf- og heilbrigðisvísinda hefur leitt af sér þúsundir hátæknistarfa og milljarða í útflutningstekjur. Samfélagslegt mikilvægi þessara fyrirtækja er einnig mikið því starfsemi þeirra bjargar mannslífum, bætir heilsu og eykur lífsgæði fólks um allan heim.

Að erindum loknum mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023.

Í lok þingsins verður boðið upp á léttar veitingar.

Fundarstjóri: Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar

Dagskrá:

13:30 Setning - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

13:35 Aðalerindi

Brautryðjandinn - Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar
Einhyrningurinn - Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis

14:05 Styttri erindi

Lilja Kjalarsdóttir, forstöðumaður rekstrar og stefnumótunar í rannsókna- og þróunardeild Alvotech

Einar Stefánsson, stofnandi Oculis

Sæmundur Oddsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri lækninga og rannsókna Sidekick Health

Berglind Johansen, framkvæmdastjóri sölusviðs BIOEFFECT

Sveinbjörn Höskuldsson, þróunarstjóri Nox Medical

14:40 Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2023
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

15:00 Léttar veitingar og spjall í miðrými Grósku

Skráning