Fréttir

Nýsköpunarþing 2024 - Markaðsmálin

Eiríkur Sigurðsson08. október 2024Viðburðir
Nyskopunarthing 2024 Banner 560 X 373 Px (002)

Hugverkastofan, Íslandsstofa, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Rannís bjóða til Nýsköpunarþings 2024 í Grósku 22. október kl. 14:00-15:30.

Á þinginu verður sjónum beint að sölu- og markaðsmálum íslenskrar nýsköpunar á erlendum mörkuðum.

Hvað þarf til, til að ná árangri á alþjóðlegum mörkuðum? Er rétt fyrir íslensk fyrirtæki að flagga íslenskum uppruna? Leggja íslensk fyrirtæki næga áherslu á sölu- og markaðsmál og uppbyggingu vörumerkja? Til að svara þessum spurningum og fleirum munu aðilar úr íslensku og alþjóðlegu markaðs- og nýsköpunarumhverfi deila reynslu af sölu- og markaðsstarfi á erlendum mörkuðum.

Aðalfyrirlesarar verða Fura Ösp Jóhannesdóttir, ráðgjafi og nýkjörinn stjórnarformaður auglýsingastofunnar Brandenburg og Bolli Thoroddsen, meðstofnandi Trip to Japan.

Í lok þingsins mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Öll velkomin.

Skrá mig núna.

Dagskrá:

14:00 Setning
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu

14:10 Erindi
Fura Ösp Jóhannesdóttir, sjálfstæður ráðgjafi og stjórnarformaður Brandenburg
Bolli Thoroddsen, meðstofnandi Trip To Japan
Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hefring Marine
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar

15:00 Pallborð með þátttöku fyrirlesara

15:15 Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 2024
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

15:30 Léttar veitingar og spjall í miðrými Grósku