Fréttir
Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni

Hugverkastofan, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Íslandsstofa og Rannís bjóða til Nýsköpunarþings 2025 í Grósku 30. október kl. 14:00-15:30. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 verða veitt á þinginu.
Hvað hefur Ísland fram að leggja í nýsköpun á alþjóðlegum markaði og hvernig geta óvæntar vendingar í alþjóðamálum haft áhrif á sókn íslenskra nýsköpunarfyrirtækja erlendis?
Íslensk nýsköpunarfyrirtæki mæta ýmsum hindrunum á vegferð sinni á erlendum mörkuðum. Að ná fótfestu á nýjum markaði getur reynst flóknara en áætlanir gera ráð fyrir og óvæntar vendingar í alþjóðamálum geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Hvernig hefur þróun alþjóðamála áhrif á íslensk nýsköpunarfyrirtæki og framtíð þeirra og geta þau með einhverjum hætti varið sig eða jafnvel skapað ný tækifæri? Í þessu samhengi er nærtækt að horft til Bandaríkjanna og þeirra áhrifa sem hækkun innflutningstolla hefur á íslensk nýsköpunarfyrirtæki.
Í lok þingsins veitir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025.
Dagskrá:
14:00 Setning Nýsköpunarþings. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
14:10 Svanhildur Hólm, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Allt í sóma í Oklahóma.
14:40 Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar. Einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja 2004 - 2024
14:50 Pallborð: Ísland í stóru myndinni. Þátttakendur: Tanya Zarov, aðstoðarforstjóri Alvotech; Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Cycles (Nýsköpunarfyrirtæki ársins 2021); Sveinn Sölvason, forstjóri og framkvæmdastjóri Embla Medical; Lóa Fatou Einarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Good Good.
15:20 Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson.
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.
