Fréttir
Nýsköpunarþing 2026 - Hugvit og tækifæri um allt land

Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa, og Nýsköpunarsjóðurinn Kría bjóða til Nýsköpunarþings 2026 í Grósku þann 29. október kl. 14:00-16:00.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á þinginu.
Á Nýsköpunarþingi verður sjónum beint að tækifærum og áskorunum í nýsköpun á landsbyggðinni. Fulltrúar fyrirtækja og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum segja frá sinni reynslu af nýsköpun og hvað þurfi til, til að góð hugmynd vaxi og dafni á landsbyggðinni. Hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða?
Markmið þingsins er að varpa ljósi á kraftinn í nýsköpun um land allt og þær aðstæður sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun.
Í lok þingsins veitir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026.
Dagskrá
OpnunarávarpÁgúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís
Setning Nýsköpunarþings 2026Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
Tækifæri til nýsköpunar í ferðaþjónustu Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima
Ignite Nordic: Nýsköpun innan starfandi fyrirtækjaSigmar Bjarni Sigurðsson, Drift EA
Nýsköpun í verki - stutt erindi frá fyrirtækjum í nýsköpunPrimex: Þóra Ýr Árnadóttir
Grammatek: Anna Nikulásdóttir*
Stökkfiskur: Sigrún Finna Snædal
Startup LandiðAnna Lind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Guðlaugur Skúlason, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
PallborðsumræðurHvað þarf til að nýsköpun þrífist um land allt?
Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.
Morgunkaffi í Grósku
Stofnanirnar sem standa sameiginlega að Nýsköpunarþingi, ásamt KLAK og IceBAN, bjóða í morgunkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast betur þeirri þjónustu, stuðningi og tækifærum sem þær bjóða frumkvöðlum og fyrirtækjum. Fulltrúar kynna starfsemi sína í stuttu máli og að því loknu gefst svigrúm fyrir samtal, spurningar og ráðgjöf.
Hvenær: Fimmtudaginn 29. október kl. 10:00 til 11:30
Hvar: Hjá Íslandsstofu í Grósku - Hugmyndahúsi, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík.
Þingið er haldið árlega í samstarfi Hugverkastofunnar, Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðsins Kríu.
