Fréttir
Opið fyrir tilnefningar til Hugvitsverðlauna ungra frumkvöðla sem veitt verða á Íslandi næsta vor

Hægt er að senda inn tilnefningar til Hugvitsverðlauna EPO fyrir unga frumkvöðla (Young Inventors Prize) til 27. september næstkomandi. Verðlaunin eru veitt af Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) og voru fyrst afhent á verðlaunahátíð Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna (European Inventor Award) í Munchen árið 2022. Fyrsta sérstaka verðlaunahátíðin fyrir unga frumkvöðla verður haldin í Reykjavík næsta vor.
Allir geta sent inn tilnefningar um frumkvöðla undir þrítugu, einstaklinga eða hópa, sem hafa þróað og birt tækninýjungar sem stuðla að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þetta er einstakt tækifæri fyrir unga frumkvöðla til að öðlast alþjóðlega viðurkenningu fyrir snjallar uppfinningar sem stuðla að betri framtíð.
Sjálfstæð dómnefnd sem skipuð er fyrri verðlaunahöfum Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna mun velja verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum. Við mat á tilnefningum hafa hugverkaskráningar og umsóknir mest vægi, svo sem veitt einkaleyfi, birtar einkaleyfisumsóknir og vörumerkja- og hönnunarskráningar, þá birtar vísindagreinar og loks hvers konar önnur opinber birting.
Tíu einstaklingar eða hópar verða valdir í hóp Framtíðarsmiða (e. Tomorrow Shapers) og hljóta þeir 5.000 evru peningaverðlaun, auk þess sem EPO mun kynna viðkomandi frumkvöðla á ýmsan hátt á vef og samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Úr hópi Framtíðarsmiða verða valdir verðlaunahafar í þremur flokkum og hljóta þeir 15.000 evrur í verðlaun að auki. Einnig verða veitt verðlaun í flokknum Val fólksins á grunni vefkosningar meðal almennings.
Nánari upplýsingar um verðlaunin og tilnefningar til þeirra er að finna á vef EPO.
#YoungInventor
