Fréttir
Pítustalli vinnur Hönnunarbikar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og Hugverkastofunnar

Hver kannast ekki við hversu erfitt það getur verið að borða pítu sem erfitt er að leggja frá sér án þess að innihaldið fari út um allt. Þetta vandamál hefur nú verið leyst af Heklu Eiríksdóttur, nemanda í 6. bekk Ölduselsskóla sem hlaut Hönnunarbikar Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og Hugverkastofunnar á lokahófi keppninnar fyrir hugmynd sína að pítustalli. Kennari Heklu í verkefninu var Ása Gunnlaugsdóttir. Ása hlaut einnig, ásamt Bryngeiri Valdimarssyni samkennara sínum, Viljann, hvatningarverðlaun kennara fyrir nýsköpunarfræðslu í grunnskóla.
Aðalverðlaun keppninnar hlaut Snjólfur Atli Hákonarson í 6. bekk Árskóla fyrir hugmynd sína að mjaltavél sem ber jafnframt sólarvörn á júgur. Kennarar hans eru Katrín Ingólfsdóttir og Sigríður Heiða Bjarkadóttir.
Á lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2025, sem haldið var síðastliðinn laugardag, 24. maí á Háskólatorgi, var hugmyndaflugið í hávegum haft. Rektor Háskóla Íslands, Dr. Jón Atli Benediktsson, opnaði athöfnina og nemendur kynntu hugmyndir sínar fyrir fjölmennum hópi keppenda, foreldra, kennara og annarra gesta. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, afhenti viðurkenningar í verðlaunaflokkum. Alls sóttu um 150 manns lokahófið og í kjölfarið opnaði sýning á Háskólatorgi þar sem hægt er að skoða frumgerðir og kynningar nemenda. Sýningin stendur til 2. júní.
Dagana fyrir lokahófið, 22. og 23. maí, komu 37 nemendur saman á háskólasvæðinu til að vinna að 26 framúrskarandi hugmyndum. Í fjölbreyttum vinnusmiðjum unnu þau að frumgerðum með aðstoð nemenda og kennara frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Þar var notast við pappír, límbyssur, rafrásir, geislaskera, 3D prentara og ímyndunarafl – og úr urðu til hagnýtar, skemmtilegar og stundum stórfurðulegar uppfinningar. Þau fengu jafnframt leiðsögn um hugverkavernd frá Jóhanni Skúla Jónssyni, lögfræðingi hjá Hugverkastofunni, sóttu örræðunámskeið hjá JCI og kynntu sér háskólasvæðið. Dagskráin innihélt einnig grillveislu, heimsókn frá ísbíl, skemmtilega þrautabraut frá Skátalandi og ekki síst tækifæri til að kynnast jafnöldrum víðs vegar af landinu.
Keppnin, sem nú fór fram í 34. sinn, hefur í gegnum árin verið vettvangur þar sem nemendur á miðstigi grunnskóla fá tækifæri til að þróa eigin hugmyndir, takast á við raunveruleg vandamál og finna frumlegar lausnir. Frá upphafi hefur markmið keppninnar verið að efla sköpunargleði, forvitni og lausnamiðaða hugsun barna og ungmenna. Með þátttöku öðlast þau dýrmæta innsýn í nýsköpunarferlið og uppgötva að þeirra eigin rödd og hugmyndir skipta máli. Sú reynsla getur lagt grunn að framtíðarviðhorfum þeirra til vísinda, tækninýjunga og samfélagsþátttöku.



