Fréttir

Ráðherra í heimsókn

Eiríkur Sigurðsson13. júní 2024Viðburðir
0610 Heimsókn Ráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti sér starfsemi Hugverkastofunnar í vikunni með starfsmönnum úr ráðuneytinu. Borghildur Erlingsdóttir forstjóri hélt kynningu fyrir hópinn þar sem hún fór m.a. yfir mikilvægi hugverkaréttinda fyrir nýsköpun og atvinnulíf, tölfræði yfir skráningar á vörumerkjum, einkaleyfum og hönnun hjá Hugverkastofunni og einkaleyfaumsóknir íslenskra aðila erlendis. Þá var fjallað um viðamikið alþjóðlegt samstarf Hugverkastofunnar við stofnanir á sviði hugverkaverndar, stafræna vegferð stofnunarinnar og fræðslustarf.

Frá ráðuneytinu sóttu fundinn, auk ráðherra: Ásdís Halla Bragadóttir ráðuneytisstjóri, Andri Steinn Hilmarsson aðstoðarmaður ráðherra, Brynhildur Pálmarsdóttir lögfræðingur og Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri.

Frá Hugverkastofunni sátu fundinn, auk forstjóra: Elfa Íshólm Ólafsdóttir sviðsstjóri rekstrarsviðs, Dagný Fjóla Jóhannsdóttir sviðsstjóri hugverka- og stjórnsýslusviðs, Pétur Vilhjálmsson stafrænn leiðtogi og Eiríkur Sigurðsson samskiptastjóri.