Fréttir
Sjúkrarúm og plötuspilari hljóta DesignEuropa hönnunarverðlaunin 2024

Design Europa hönnunarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í þjóðarbókhlöðunni í Riga í Lettlandi 25. september. Verðlaunin eru veitt af Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO). Þeim er ætlað að vekja athygli á framúrskarandi iðnhönnun og mikilvægi þess að hönnuðir verji hönnun sína með skráningu.
Í flokki frumkvöðla og lítill fyrirtækja vann sænska fyrirtækið Transparent fyrir nýstárlegan og stílhreinan plötuspilara úr áli og gleri sem hannaður var af Per Brickstad.
Í iðnaðarflokki vann hollenska fyrirtækið Linet fyrir sjúkrarúmið Essenza 300 LT. Við hönnun rúmsins lagði hönnunarteymi Linet áherslu á rúmið myndi auðvelda umönnun sjúklinga og bæta öryggi þeirra og þægindi.
Þýski hönnuðurinn Dieter Rams hlaut heiðursverðlaun fyrir ævistarfið, en hann hefur hannað Braun rafmagnsvörur um áratuga skeið. Þá hlaut hin ítalska Chiara Mignani viðurkenningu sem ungur og upprennandi hönnuður. Hún hefur getið sér gott orð fyrir hönnun snekkja sem knúðar eru rafmagni hjá NERO Yachts.
Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana er að finna hér.
