Fréttir

Stelpur úr Hlíðaskóla í heimsókn

441535505 404624052554503 5859495372980669566 N (1) (1)

Hugverkastofan fékk í síðustu viku heimsókn frá stelpum úr 9. bekk í Hlíðaskóla á vegum Stelpur, stálp og tækni. Um er að ræða viðburð sem Háskólinn stendur fyrir þar sem stelpum og stálpum úr grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu er boðið í heimsókn til HR og ýmissa fyrirtækja til að kynna sér fljölbreytt tæknileg viðfangsefni og starfsmöguleika.

Stelpurnar fengu stutta kynningu á hugverkaréttindum og starfsemi Hugverkastofunnar og voru fljótar að átta sig á verðmætum hugverka og mikilvægi þess að huga að hugverkaréttindum sínum.

Þær tóku þátt í vörumerkjaleik þar sem giskað var á hvert vörumerkið væri og greinilegt var að stelpurnar fylgjast vel og þekkja fjölmörg vörumerki. Loks hönnuðu þær sitt eigið vörumerki þar sem höfð voru í huga skilyrði vörumerkjalaga um skráningu vörumerkja. Meðal hugmynda stelpnanna voru mótórhjólaverkstæði, nýr svalandi drykkur sem átti rætur sína að rekja til Kólumbíu og blómabúð. Það er aldrei að vita nema hér hafi verið á ferð frumkvöðlar framtíðarinnar.

Starfsfólk Hugverkastofunnar hafði mjög gaman af því að fá stelpurnar í heimsókn og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna og sýndan áhuga.