Fréttir

Treble Technologies hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026

Eiríkur Sigurðsson30. október 2026Viðburðir
Treble Nýsköpunarverðlaun 2026

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 eru veitt nýsköpunarfyrirtækinu Treble Technologies sem hefur þróað og markaðssett hljóðhermunartækni sem endurskapar raunverulegar hljóðaðstæður í sýndarumhverfi. Tæknin nýtist meðal annars við hönnun bygginga, þróun hljóðbúnaðar og gervigreindar sem þarf að geta skynjað og túlkað hljóð í umhverfi sínu.

Um verðlaunahafa

Treble Technologies var stofnað árið 2020 og hefur byggt upp alþjóðlega starfsemi með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið þróar hugbúnað sem tæknifyrirtæki, hönnuðir og aðrir sérfræðingar nýta til að herma eftir því hvernig hljóð berst og hegðar sér í raunverulegu umhverfi. Lausnin nýtist meðal annars við hönnun hljóðvistar bygginga, þróun hljóðbúnaðar og prófanir á búnaði sem byggir á hljóðskynjun.

Gunnar P. Hauksson, Guðlaug Guðmundsdóttir og Ingimar Andersen tóku við verðlaununum fyrir hönd Treble Technologies
Gunnar P. Hauksson, Guðlaug Guðmundsdóttir og Ingimar Andersen tóku við verðlaununum fyrir hönd Treble Technologies

Á undanförnum árum hefur Treble nýtt hljóðhermunartækni sína til að styðja við þróun tækja og gervigreindar sem geta skynjað og skilið hljóð við raunverulegar aðstæður. Með því að endurskapa fjölbreytt hljóðumhverfi í tölvu er hægt að prófa og bæta virkni tæknibúnaðar áður en hann er tekinn í notkun. Lausnirnar nýtast meðal annars við þróun snjalltækja, talgreiningar og vélmenna. Framtíðarsýn Treble er að skapa heim sem hljómar betur, þar sem fólk á auðveldara með samskipti sín á milli og við tæknina í kringum sig.

Treble á í viðskiptum við alþjóðleg tæknifyrirtæki, meðal annars Amazon og Logitech. Nær allar tekjur fyrirtækisins koma frá erlendum mörkuðum og námu tekjur þess rúmlega 177 milljónum króna árið 2025. Sama ár voru unnin rúmlega 33 ársverk hjá fyrirtækinu, þar af rúmlega 23 við rannsóknir og þróun.

Fyrirtækið hefur fengið fjögur einkaleyfi veitt í Bandaríkjunum vegna tækni sinnar og vinnur að frekari hugverkavernd á alþjóðlegum mörkuðum. Treble hefur einnig aflað fjármögnunar frá alþjóðlegum fjárfestum til frekari rannsókna, þróunar og markaðssóknar.

Rökstuðningur dómnefndar

Treble Technologies sýnir með eftirtektarverðum hætti hvernig íslenskt rannsóknar- og þróunarstarf getur lagt grunn að alþjóðlegu tæknifyrirtæki. Með sérhæfðri þekkingu á sviði hljóðhermunar hefur fyrirtækið þróað tækni sem hefur skapað því sterka sérstöðu á alþjóðlegum markaði.

Hröð þróun gervigreindar hefur opnað nýja möguleika fyrir tækni Treble. Fyrirtækið hefur sýnt framsýni með því að nýta þekkingu og tækni sem upphaflega var þróuð fyrir hljóðhermun til að mæta nýjum þörfum á sviði gervigreindar. Sú sérþekking sem Treble hefur byggt upp nýtist nú við þróun tækja og kerfa sem þurfa að geta skynjað og túlkað hljóð í umhverfi sínu. Með þessari útvíkkun á notkunarsviði tækninnar hefur fyrirtækið skapað sér ný viðskiptatækifæri á markaði sem er í örri þróun.

Treble hefur þegar sýnt fram á viðskiptalegt gildi tækninnar með sölu til leiðandi tæknifyrirtækja á alþjóðlegum markaði. Fyrirtækið hefur jafnframt tryggt mikilvæg hugverkaréttindi og aflað umtalsverðs vaxtarfjármagns sem styður við frekari þróun og alþjóðlega markaðssókn.

Treble hefur byggt upp sérhæfða starfsemi á Íslandi og skapað störf fyrir fólk með þekkingu á sviði rannsókna og tækniþróunar. Með því að nýta rannsóknarafrakstur sinn á nýjum mörkuðum hefur fyrirtækið sýnt frumkvæði og aðlögunarhæfni sem önnur íslensk sprotafyrirtæki geta tekið sér til fyrirmyndar.

Það er mat dómnefndarinnar að Treble Technologies sé verðugur handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands árið 2026.

Á Nýsköpunarþingi var sjónum að þessu sinni beint að tækifærum og áskorunum í nýsköpun á landsbyggðinni.
Á Nýsköpunarþingi var sjónum að þessu sinni beint að tækifærum og áskorunum í nýsköpun á landsbyggðinni.

Nýsköpunarverðlaun Íslands

Nýsköpunarverðlaunin Íslands eru veitt af Rannís, Nýsköpunarsjóðnum Kríu, Íslandsstofu og Hugverkastofunni til félaga sem skara fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna, hugvits og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um er að ræða sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýrri tækni og hugmynd og hafi þekkingu og reynslu til að sinna framúrskarandi þróunarstarfi. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta svipaðar brautir.

Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.