Fréttir

TVÍK sigraði Gulleggið

Jón Gunnarsson08. febrúar 2022Viðburðir
Gulleggid 2022

TVÍK hlaut fyrsta sæti á lokakeppni Gulleggsins 2022 sem fór fram föstudaginn 4. febrúar í hátíðarsal Grósku. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tilkynnti um þrjú efstu sætin.

TVÍK er gagnvirkur kennsluvettvangur sem styðst við nýjustu máltækniaðferðir til að hjálpa þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í að læra íslensku. Verðlaunaféð fyrir fyrsta sætið var að þessu sinni 1.000.000 krónur frá Landsbankanum.

Úrslit Gulleggsins 2022 - TVÍK í fyrsta sæti, SEIFER í öðru sæti og Lilja app í þriðja sæti. - Mynd Icelandic Startups
Úrslit Gulleggsins 2022 - TVÍK í fyrsta sæti, SEIFER í öðru sæti og Lilja app í þriðja sæti. - Mynd Icelandic Startups

Í öðru sæti var hugmyndin SEIFER sem vinnur að því að hanna og þróa íþróttabúnað, ásamt gagnagrunni, sem sem er nýttur í rauntíma mælingar og gagnasöfnun varðandi höfuðhögg. SEIFER hlaut að launum 500.000 krónur frá Landsbankanum. Þriðja sætið og 300.000 krónur frá landsbankanum hlaut Lilja app, bjargráður þolenda til bættrar lagalegrar og félagslegrar stöðu.

Öll topp 10 teymin með bakhjörlum og dómurum ásamt Icelandic Startups. - Mynd: Icelandic Startups
Öll topp 10 teymin með bakhjörlum og dómurum ásamt Icelandic Startups. - Mynd: Icelandic Startups

Hugverkastofan hefur verið stoltur styrktaraðili Gulleggsins síðastliðin ár og boðið þátttakendum upp á fræðslu og aðstoð við að vernda hugverkin sín á fyrstu stigum. Auk þess á Hugverkastofan fulltrúa í dómnefnd Gulleggsins. Icelandic Startups stendur árlega fyrir keppninni en hún er stökkpallur fyrir frumkvöðla á öllum sviðum sem vilja koma hugmynd sinni í framkvæmd. Af þeim 155 hugmyndum sem bárust í ár voru yfir áttatíu kynningar sendar inn í lokakeppnina voru tíu valdar til að keppa um Gulleggið 2022 á föstudaginn var.