Fréttir

Ungir frumkvöðlar heiðraðir í Hörpu

Eiríkur Sigurðsson19. júní 2025Alþjóðlegt samstarfViðburðir
Tomorrow Shapers

Evrópska einkaleyfastofan (EPO) veitti Hugvitsverðlaun ungra frumkvöðla 2025 við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær, 18. júní. Athöfninni var streymt beint frá Reykjavík til áhorfenda um allan heim. Á athöfninni voru 10 frumkvöðlar og teymi frumkvöðla, 30 ára og yngri, heiðruð fyrir framúrskarandi nýsköpun sem styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Þýski sjónvarpsmaðurinn Benedikt Weber stýrði athöfninni með aðstoð hinnar 13 ára frönsku Capucine Auffret. Verðlaunagripirnir voru smíðaðir af Brynhildi Þorgeirsdóttur myndlistamanni.

Dómnefnd valdi tíu einstaklinga eða teymi, svokallaða „frumkvöðla morgundagsins“, úr um 450 tilnefningum víðsvegar að úr heiminum. Allir frumkvöðlarnir hlutu 5.000 evrur í verðlaun frá Evrópsku einkaleyfastofunni en þrjú verkefni hlutu að auki sérstök verðlaun í flokkum sem endurspegla áhrif nýsköpunarinnar á samfélagið og 15.000 evrur að auki.

Heimssmiðir (World Builders): Marie Perrin (Bandaríkin/Frakkland) – fyrir að endurvinna sjaldgæfa málma úr raftækjaúrgangi.

Samfélagslæknar (Community Healers): Sandra Namboozo og Samuel Muyita (Úganda) – fyrir umbúðir sem lengja geymsluþol ávaxta.

Varðmenn náttúrunnar (Nature Guardians): Neeka Mashouf og Leila Mashouf (Bandaríkin) – fyrir ferli sem umbreytir koltvísýringi í verðmætt hráefni.

Spænska teymið Pilar Granado, Pablo Sosa Domínguez og Luis Chimeno sérstök verðlaun áhorfenda (People’s Choice) eftir netkosningu fyrir þróun snjallmerkja sem greina ferskleika matvæla.

Samhliða verðlaunahátíðinni var árlegur samráðsfundur 39 aðildarlanda Evrópsku einkaleyfastofunnar, haldinn í Hörpu. Fundinn sóttu forstjórar og aðrir stjórnendur hugverkastofa aðildarlandanna ásamt fylgdarliði. Hátt í 300 manns sóttu Ísland heim í tengslum við þessa viðburði.