Uppfinningamenn hafradrykkja, sandormsblóðrauða, malaríubóluefnis, rafhlöðuendurvinnslu og flutningskerfis fyrir háspennujafnstraum hljóta Evrópsku nýsköpunarverðlaunin 2026

17. júlí 2026Viðburðir
Evrópsku nýsköpunarverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Berlín 2. júlí síðastliðinn. Verðlaunin eru veitt af Evrópu einkaleyfastofunni (European Patent Office, EPO) uppfinningamönnum sem hafa fengið evrópsk einkaleyfi á uppfinningum sem hafa haft mikil jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi eða atvinnulíf. Um er að ræða eina virtustu viðurkenningu á sviði nýsköpunar og hugverkaréttinda í Evrópu.
Verðlaunahafar 2026 eru:
- Í flokki iðnaðar: Angeliki Triantafyllou fyrir uppfinningu á ensímferli sem bætir bragð, áferð og stöðugleika hafradrykkja og gerði þá að almennt viðurkenndum valkosti við mjólk.
- Í flokki rannsókna: Adrian V.S. Hill (Írlandi, Bretlandi) fyrir að þróa R21/Matrix-M malaríubóluefnið sem veitir allt að 75-80% vernd gegn malaríu og sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur mælt með að sé notuð til að koma í veg fyrir malaríusmit hjá börnum.
- Í flokki lítill og meðalstórra fyrirtækja: Franck Zal frá Frakklandi fyrir uppfinningu á læknisfræðilegri notkun blóðrauða úr sandormi.
- Í flokki uppfinninga frá ríkjum utan EPO: Yu Haijun og Xie Yinghao frá Kína fyrir uppfinningu á nýrri aðferð til að breyta notuðum litíumjónarafhlöðum í hágæða bakskautsefni.
- Heiðursverðlaun fyrir ævistarf: Rainer Marquardt frá Þýskalandi fyrir þróun sína á byltingarkenndri nýjung sem varð að alþjóðlegum staðli fyrir jafnstraumsflutningskerfi (HVDC) á háspenntri raforku.
- Val almennings: Yu Haijun og Xie Yinghao frá Kína fyrir uppfinningu sína á nýrri aðferð við endurvinnslu litíumjónarafhlaða.
Íslenskir uppfinningamenn hafa verið tilnefndir til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna í tvö undanfarin skipti sem þau hafa verið veitt. Árið 2024 var Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, tilnefndur fyrir uppfinningu sína á því hvernig nota megi fiskroð til að græða sár og árið 2023 voru Þorsteinn Loftsson og Einar Stefánsson, stofnendur Oculis, tilnefndir fyrir uppfinningu á hvernig mætti mögulega meðhöndla augnsjúkdóma með augndropum í stað sprauta.
Hér má horfa á upptöku af verðlaunahátíðinni í Berlín og finna upplýsingar um allar þær áhugaverðu uppfinningar sem tilnefndar voru til verðlaunanna.
