Fréttir

Vefnámskeið um gildi hönnunarskráninga á Íslandi, í Noregi og hjá Evrópusambandinu

Stórviðburður

Hönnuðum og öðru áhugafólki um hönnun býðst að taka þátt í ókeypis vefnámskeiði 13. maí næstkomandi þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að nýta skráningar á hönnun til að tryggja samkeppnisforskot. Sérfræðingar frá hugverkastofum Íslands og Noregs og frá EUIPO (European Union Intellectual Property Office) munu fara yfir skráningarferlið og hvernig skráning verndar hönnun.

Upptaka frá viðburðinum

Dagskrá:

9:00 Inngangsorð

9:10 Kynning á norska hönnunarskráningarkerfinu
Marie Rasmussen, Head of Section, Designs, Patentstyret

9:40 Kynning á íslenska hönnunarskráningarkerfinu
Jóhann Skúli Jónsson, lögfræðingur, Hugverkastofunni

10:10 Kynning á hönnunarskráningarkerfi EUIPO
Sophia Bonne, Business and Development Department, EUIPO

10:40 Spurningar og svör

Til umfjöllunar:

  • Hvað er hönnunarskráning og hvaða vernd veitir hún fyrir hönnuði og fyrirtæki?
  • Hvernig skráir þú hönnun á Íslandi, í Noregi og í Evrópusambandinu?
  • Hvernig getur hönnunarskráning styrkt samkeppnisforskot þitt?

Námskeiðið er haldið í samstarfi hugverkastofa Íslands, Noregs og Evrópusambandsins.

Fyrir hvern?

Námskeiðið er sérstaklega fyrir hönnuði sem hafa hannað sérstakar vörur en ekki enn verndað hönnunina með skráningu á viðeigandi mörkuðum en allt áhugafólk um hönnun og hugverkaréttindi er velkomið.

Námskeiðið fer fram á ensku. Til þess að fá Zoom-tengil þarft þú að skrá þig á vef EUIPO.