Vel heppnað Nýsköpunarþing

08. nóvember 2023Viðburðir
Nýsköpunarþing Íslands 2023 - Líf lífvísindum, var haldið í Grósku 26. október síðastliðinn. Þingið var að þessu sinni helgað fyrirtækjum í líf- og heilbrigðisvísindum. Stofnendur og stjórnendur Íslenskrar erfðagreiningar, Kerecis, Alvotech, NOX Medical, Sidekick Health, BIOEFFECT og Oculis fjölluðu um árangur sinna fyrirtækja frá mismunandi sjónarhóli.
Mjög góður rómur var gerður að fyrlestrum af þeim fjölmörgu gestum sem sóttu þingið eða horfðu á það í beinu streymi. Hér að neðan er að finna upptökur af einstökum fyrirlestrum.
Í lok þingsins afhenti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, PayAnalytics Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023.
Að Nýsköpunarþingi standa Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins.
