Vel heppnaður viðburður helgaður íþróttatækni á Nýsköpunarviku

04. maí 2026Viðburðir
Öflug nýsköpun á sviði íþróttatækni var til umræðu á viðburðinum Game Changers í Austurbæ í Nýsköpunarvikunni á fimmtudaginn var. 30. apríl. Þar var kastljósinu beint að fjölbreyttum nýsköpunarfyrirtækjum í íþróttatækni, vörum þeirra og þjónustu og hvernig þau vernda hugverkin sín. Það var mjög áhugavert að sjá og heyra hversu mikið er að gerast á þessu sviði hér á landi. Vonandi verður viðburðurinn til að stuðla að samtali og auknu samstarfi fyrirtækja á þessu sviði til framtíðar og auka athygli á geiranum.
Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Össur í tilefni Iceland Innovation Week og Alþjóðahugverkadagsins (#WorldIPDay).
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar setti viðburðinn og ræddi mikilvægi þess að nýsköpunarfyrirtæki verndi hugverkin sín.
Elísabet Blöndal ljósmyndari var á staðnum til að fanga stemninguna.










