Fréttir

Vel heppnuð 35 ára afmælisráðstefna

Eiríkur Sigurðsson27. nóvember 2026Viðburðir
Panell

Það var þétt setinn bekkurinn í Kaldalóni í Hörpu miðvikudaginn 25. nóvember þegar Hugverkastofan hélt ráðstefnu í tilefni af 35 ára afmæli stofnunarinnar. Yfirskrift ráðstefnunnar var Hugverkavernd og fjárfestingar í nýsköpun á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi og hún var haldin í samstarfi við Nýsköpunarsjóðinn Kríu og Evrópsku einkaleyfastofuna (EPO).

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, setti ráðstefnuna og flutti samantekt í lokin

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar, setti ráðstefnuna. Hún benti á að hugverk væru oft verðmætustu eignir nýsköpunarfyrirtækja. Markviss hugverkavernd auðveldi fyrirtækjum að sýna fjárfestum fram á þau verðmæti. Markmiðið með ráðstefnunni væri koma á samtali á milli frumkvöðla, fjárfesta, banka, stjórnvalda og þeirra sem starfa að hugverkavernd um fjármögnun á grunni hugverkaréttinda.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði ráðstefnuna.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði ráðstefnuna. Hann sagði Ísland standa sig vel í rannsóknum og þróun en að gera mætti betur í að breyta þeim í verðmæti. Hann greindi frá því að á nýju ári verði einkaleyfastyrkir sjóðsins teknir til skoðunar í samstarfi við Rannís, með það fyrir augum að fjölga einkaleyfisumsóknum íslenskra aðila.

Það var þétt setinn bekkurinn í Kaldalóni í Hörpu á 35 ára afmælisráðstefnu Hugverkastofunnar

Nellie Simon, framkvæmdastjóri stoðþjónustu hjá EPO, kynnti verkefni stofnunarinnar um fjármögnun nýsköpunar.

Fulltrúar íslenskra fyrirtækja sögðu frá því hvernig hugverkavernd hefur nýst þeim til vaxtar og fjármögnunar. Það voru Björn Jónsson frá Hefring Marine, Bjarney Harðardóttir frá 66°Norður, Benedikt Skúlason frá LAUF Cycles, André Rocha frá Embla Medical og Sölvi Þrastarson frá Treble Technologies.

Björn Jónsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri rekstrar hjá Hefring Marine talaði um mikilvægi einkaleyfa fyrir skölun íslenskra nýsköpunarfyrirtækja á erlendum markaði

Bjarney Harðardóttir, eigandi og forstjóri vörumerkis, 66°N ræddi hvernig vörumerki og hönnun skapa verðmæti á alþjóðlegum markaði

Benedikt Skúlason, stofnandi og forstjóri, LAUF Cycles, kynnti fyrirtækið og rakti reynslu LAUF af því að sækja fjármögnun þegar á móti blés vegna tollamála í Bandaríkjunum.

Boðið var upp á léttar veitingar í tilefni afmælisins en Hugverkastofan var stofnuð árið 1991

Lísbet, Kristín Inga, Guðrún Ósk og Linda, starfsmenn Hugverkastofunnar

André Rocha, framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar hjá Embla Medical, talaði um nýsköpun og hugverkavernd sem grundvöll vaxtar í lækningatækjageiranum

Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður hjá Arion banka, hélt erindi um fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja og kynnti lánamöguleika fyrir nýsköpunarfyrirtæki í samstarfi við Evrópska fjárfestingasjóðinn

Helga Sigurrós Valgeirsdóttir frá Arion banka fjallaði um fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja. Í lok dagskrár ræddu Helga, Björn og Óskar Fannar Vilmundarson frá Brunni Ventures hugverkaréttindi og fjárfestingar í pallborði. Fundarstjóri var Katrín Júlíusdóttir.

Sölvi Þrastarson, leiðtogi tækniteymis Treble Technologies, nýsköpunarfyrirtækis Íslands 2026 talaði um einkaleyfi sem grunn að fjármögnun og alþjóðlegu samstarfi

Að loknum erindum ræddu Björn, Helga Sigurrós og Óskar Fannar Vilmundarson frá Brunnur Ventures, umfjöllunarefni ráðstefnunnar í pallborði undir stjórn Katrínar Júlíusdóttur.

Gestir ráðstefnunnar voru m.a. frá nýsköpunarfyrirtækjum, bönkum, fjárfestingasjóðum, háskólum, ráðuneytum og stuðningsumhverfi nýsköpunar.

Úlfar Arnórsson og Elías Mikael Vagn Siggeirsson hjá JBTMarel voru meðal gesta

Eiríkur Sigurðsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar og Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi, fyrrverandi ráðherra og fundarstjóri á ráðstefnunni

Björn Jónsson, Hefring Marine; Borghildur Erlingsdóttir Hugverkastofunni; Nellie Simon, Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO); Sölvi Þrastarson, Treble Technologies; Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, Arion banka; Benedikt Skúlason, LAUF Cycles; Óskar Fannar Vilmundarson, Brunnur Ventures, Katrín Júlíusdóttir, ráðgjafi.

Við þökkum fyrirlesurum, ráðherra, samstarfsaðilum og gestum kærlega fyrir komuna.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá ráðstefnunni.

Upptökur af einstökum fyrirlestrum verða birtar hér á vefnum fljótlega.