Útgáfa » Fréttir
Verðmæti vörumerkja - Leiðtogafundur

27. janúar 2022
Stór tækifæri eru í verðmætasköpun með faglegri uppbyggingu vörumerkja. Samþætt stjórnun vörumerkja þvert á starfsemina skiptir lykilmáli í uppbyggingu þeirra verðmæta sem felast í ímynd, orðspori og viðskiptavild fyrirtækja. Verndun vörumerkja er þar oft gleymdur, en mikilvægur, þáttur sem er grundvöllur verðmætasköpunar.
Fimmtudaginn 3. febrúar, kl. 10 munu Hugverkastofan og brandr halda sameiginlegan leiðtogafund þar sem umræðuefnið er uppbygging og verndun vörumerkja.
Framsögufólk mun hvert og eitt halda stutt erindi og að þeim loknum verður pallborðsumræða.
Framsögufólk og þátttakendur í pallborði eru:
Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Cycling.
Friðrik Larsen, dósent í HÍ og eigandi brandr.
Jón Gunnarsson, samskiptastjóri Hugverkastofunnar.
María Kristjánsdóttir, lögmaður hjá LEX lögmannsstofu.
Ása Björg Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri brandr mun stýra umræðu í pallborði.