Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

5 einkenni góðs vörumerkis

Fimm Góð Einkenni Vörumerkja

07. maí 2026Vörumerki

Vörumerki eru misgóð út frá sjónarhóli vörumerkjaskráningar. Hér eru fimm atriði sem einkenna góð, skráð vörumerki:

1. Sérkenni – Gott vörumerki felur í sér orð eða tákn sem gefur merkinu sérkenni. Það er mikilvægt að vörumerki feli í sér einkenni sem neytandi festir sér auðveldlega í minni. 

2. Ekki lýsandi – Sterkustu vörumerkin hafa enga beina merkingu í tengslum við þær vörur eða þjónustu sem þau standa fyrir. Apple hefur t.d. enga sérstaka merkingu sem tengist þeirri tækni sem fyrirtækið býður upp á og Arion hefur enga sérstaka þýðingu sem tengist fjármálum. Ný merki sem einfaldlega lýsa vöru eða þjónustu er erfitt eða ómögulegt að fá skráð.

(Þó er stundum hægt að fá lýsandi vörumerki skráð á grundvelli markaðsfestu, ef sýnt er fram á að neytendur tengi viðkomandi merki  við viðkomandi vöru eða þjónustu. Dæmi um vörumerki sem eru skráð á grundvelli markaðsfestu eru t.d. Ölgerðin og Flytjandi.)

3. Ekki ruglingshætta – Það má ekki vera hætta á að neytandi ruglist á merkinu þínu og öðru merki sem er til skráð fyrir sambærilega vöru eða þjónustu. Það er þess vegna góð hugmynd að skoða skráningar í íslensku vörumerkjaskránni og í gagnagrunni Alþjóðahugverkastofnunarinnar, WIPO, áður en ný vörumerki eru tekin í notkun.

4. Rétt skráning á vörum á þjónustu – Þær vörur og þjónusta sem vörumerkið tekur til þurfa að vera skilgreindar á réttan og skýran hátt í umsókninni. Ef sótt er um of víðtæka vernd er hætt við að umsóknin verði véfengd en ef sótt er um of fáar tilgreiningar er hætt við að vörumerkjaverndin verði of þröng og nái ekki til allra þeirra vöru og þjónustu sem hún þyrfti að gera. 

5. Er í notkun – Það er notkunarskylda á skráðum vörumerkjum. Ef ekki er hægt að sýna fram á notkun á skráðu vörumerki innan fimm ára frá því að skráningarferli lýkur getur hver sem er farið fram á niðurfellingu vörumerkisins. 

Skráning er einföld en mikilvæg fjárfesting sem getur skipt sköpum við uppbyggingu vörumerkja.

Meira um skráningu vörumerkja

Sækja um skráningu

5 einkenni góðs vörumerkis - Hugverkastofan