Aldrei fleiri íslenskar vörumerkjaumsóknir í júlí

13. ágúst 2026Vörumerki
Aldrei hafa fleiri umsóknir um skráningu íslenskra vörumerkja borist Hugverkastofunni í júlímánuði en í ár, en alls bárust 90 umsóknir í nýliðnum mánuði. Nú eru nærri átta þúsund íslensk vörumerki skráð hér á landi og hafa þau aldrei verið fleiri.
Hugverkastofan hefur einnig náð að stytta málsmeðferðartíma umsókna verulega og nú er algengt að niðurstaða liggi fyrir á örfáum dögum, í stað nokkurra vikna áður. Styttri afgreiðslutími skýrist meðal annars af því að Hugverkatíðindi, þar sem skráð vörumerki og önnur hugverkaréttindi eru gerð aðgengileg almenningi, eru nú gefin út vikulega í stað mánaðarlega áður. Þá hefur nýtt rannsóknakerfi til að ákvarða skráningarhæfi vörumerkja einnig stuðlað að styttri málsmeðferðartíma. Styttri málsmeðferð þýðir að umsækjendur fá fyrr úr því skorið hvort umsókn uppfylli skilyrði fyrir skráningu og geta þar með skipulagt markaðssetningu og annan rekstur með meiri fyrirvara og öryggi.
„Þetta er mjög ánægjuleg þróun sem endurspeglar vaxandi vitund íslenskra fyrirtækja um mikilvægi þess að verja þau verðmæti sem felast í vörumerkjum, hvort sem um ræðir fyrirtækjaheiti, vöruheiti, lógó eða slagorð," segir Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar. „Við viljum tryggja að afgreiðslan hjá okkur haldi í við þennan aukna áhuga og það hefur tekist og gott betur."
