Fréttir
Ducking Warm vörumerki septembermánaðar – Nýtt íslenskt útivistarmerki

Vörumerki septembermánaðar er orð- og myndmerkið Ducking Warm Icelandic Eider sem stendur fyrir nýja vörulínu íslensks útivistarfatnaðar með íslenskum æðardún. Fyrstu 25 jakkarnir í merkinu eru væntanlegir á markað í nóvember og munu kosta í kringum 5000 dollara, jafnvirði um 670.000 íslenskra króna.
Árni Rúnar Örvarsson rekur fyrirtækið Icelandic Eider og stefnir hátt. Það eru sex ár síðan hann stofnaði fyrirtækið sem framleiðir og selur æðardúnssængur og rekur tvö æðarvörp á Tröllaskaga. Á bak við fyrirtækið er yfir 80 ára saga hjá tengdafjölskyldunni.
Ég áttaði mig fljótt á því að það þurfti ansi mörgu að breyta í íslenskri æðarækt og vinnslu æðardúns. Það er magnað að Íslendingar skuli framleiða um 80% af þessari eftirsóttu últra-lúxusvöru en flytja megnið af henni út sem hrávöru fyrir aðra til að vinna úr.
Árni segir að árið 2021 hafi æðardúnn verið fluttur út fyrir 650 milljónir króna en sama ár hafi áætluð sala á æðardúnsvörum í heiminum numið 4,5 milljörðum króna. Virðisaukinn hafi því nær allur orðið utan Íslands. Þessu vill hann breyta.

Samkeppni meðal útivistarfólks um flottustu græjurnar
Árni ákvað fljótt að fókusera á útivistarmarkaðinn. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi er fólk í dag tilbúið að eyða í áhugamál sín og það er mikil samkeppni á milli útivistarfólks um það hver á flottustu og dýrustu græjurnar. Þá tali fólk mikið um sína útivist og deili myndum úr henni á samfélagsmiðlum. Þannig sé umtal mjög mikilvægur þáttur í markaðssetningu útivistarvara og hægt að ná miklum árangri með góðri og áhugaverðri sögu. Og það sé leitun að áhugaverðari eða sjálfbærari sögu en af sambýli Íslendinga og æðarfuglsins. Árni segir að ólíkt því sem gerist með nánast allan annan dún í heiminum, sé enginn fugl drepinn né reyttur lifandi þegar íslenskum æðardún er safnað. En þetta sé ekki allt því æðardúnn sé algjörlega einstök vara og það sé enginn annar dúnn í heiminum sem komist nálægt honum í einangrunargildi miðað við þyngd.
„One fucking warm jacket!“
Í byrjun var ætlunin að vinna eingöngu með eigendum annarra vörumerkja að því að koma æðardúni í ýmsar útivistarvörur. Nokkrar slíkar vörur koma á markað í haust en eftir að hafa aflað sér dýrmætra sambanda og reynslu, ákvað Árni að stofna eigið fyrirtæki í kringum hugmyndina að útivistarfötum með æðardúni. Hann segist vinna með miklum snillingum og reynsluboltum á sviði útivistar og markaðsmála hér á landi og erlendis að þróun fatnaðarins og vörumerkisins. „Nafnið kom þannig til að mikill útivistarfrömuður prófaði frumgerð að jakka frá okkur og sagði þegar hann skilaði honum að þetta væri „one fucking warm jacket!“ Þar var nafnið bara komið!“

Húmor og léttleiki í merkinu
Hann segir að í raun séu þau að búa til alveg nýtt konsept í útivistarbransanum. Hágæða lúxusvöru, sem sé eins sjálfbær og tæknin leyfir í dag. Það sé viljandi að nafnið sé ögrandi og geti stuðað fólk og að bæði nafnið og merkið beri í sér ákveðinn húmor og léttleika. Þannig sé ætlunin að skera sig frá öðrum lúxusvörum á sviði útivistar. Þau hafi líka viljað vera með önd í merkinu til að undirstrika þá staðreynd að dúnninn sé ekki reyttur af lifandi öndum. Merkið var hannað af Chris Lord frá Englandi sem rekur stofuna Boxfresh Creative. Það sé hringlaga og henti vel til að setja á fatnað og einkennist af mjúkum línum sem einkenni klassísk vörumerki.
Fótboltamaður og uppreisnarseggur
Árni segist vera „ættleiddur sveitalúði“. Hann hafi verið í fótbolta og spilað út um allan heim og þannig aflað sér verðmætra sambanda. Hann hafi hins vegar ungur fengið brjósklos og þurft að finna sér annað að gera. Hann sé í eðli sínu uppreisnarseggur og ekki mikið fyrir það að fara troðnar slóðir eða fylgja í fótspor annarra „Ég hef alltaf getað reddað mér og verið óhræddur við að koma sjálfum mér á framfæri og prófa nýja hluti. Það má þess vegna segja að það sé ákveðinn hluti af mínum persónuleika í Ducking Warm vörumerkinu,“ segir hann.
500 manns langi í 25 jakka
Ducking Warm vörurnar verða seldar í beinni sölu til neytenda á netinu. „Það er þó alls ekki ætlunin að það verði auðvelt eða einfalt að verða sér út um þessar vörur. Markmiðið er að það verði 500 manns sem vilji eignast þessa ca. 25 jakka sem gert er ráð fyrir að verði framleiddir í byrjun,“ segir Árni að lokum.
Starfsfólk velur vörumerki mánaðarins
Vörumerki mánaðarins er nýtt framtak hjá Hugverkastofunni, unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með að fjalla sérstaklega um eitt valið vörumerki í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráningar og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýrra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Vörumerki mánaðarins er gott vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að rugla því við önnur merki. Þá þarf að vera hægt að segja áhugaverðar sögur tengdar vörumerkinu eða því fyrirtæki, vöru eða þjónustu sem það stendur fyrir.
