Fréttir

Einn og hálfur milljarður til Barnaspítala Hringsins frá aldamótum

Eiríkur Sigurðsson26. febrúar 2025Vörumerki
Anna Björk

Orð- og myndmerki Barnaspítala Hringsins er skráð vörumerki febrúarmánaðar hjá Hugverkastofunni. Merkið er í eigu Barnaspítalasjóðs kvenfélagsins Hringsins sem stutt hefur dyggilega við uppbyggingu og tækjavæðingu Barnaspítalans í áratugi. Við hittum formann Hringsins, Önnu Björk Eðvarðsdóttur, í félagsheimili Hringskvenna í Nethyl, til að fræðast um sögu félagsins, Barnaspítalann og vörumerkið.

Anna segir að það sé vel við hæfi að merki Barnaspítalans hafi orðið fyrir valinu sem vörumerki mánaðarins núna, því kvenfélagið Hringurinn átti 120 ára afmæli í fyrra og af því tilefni var merki félagsins endurnýjað. „Merkið er upphaflega frá árinu 1943, hannað af Ágústu Pétursdóttur Snæland, fyrsta Íslendingnum sem lauk prófi í auglýsingateiknun,“ segir Anna. „Merkið var handteiknað á sínum tíma og við endurtekna afritun og meðferð prentstofa hafði það með tímanum breyst. Okkur langaði að koma merkinu aftur í upprunalegt horf og höfðum samband við Godd, rannsóknarprófessor við Listaháskóla íslands, en hann lagðist í rannsóknarvinnu og kom sér í samband við afkomendur Ágústu sem fundu upprunalegar teikningar hennar af merkinu. Hann fékk svo Pétur og Ólöfu á auglýsingastofunni P&Ó til að færa merkið aftur í upprunalegt horf og útbúa staðal fyrir útlit þess. Þau fóru mjög nærgætnum höndum um merkið þannig að nú er það aftur orðið eins og Ágústa ætlaðist til að það væri. Okkur þykir mjög vænt um þetta merki því það endurspeglar svo mikla hlýju og kærleika.“

Lofaði að styðja við veika og sjúka

Kvenfélagið Hringurinn er merkilegur félagsskapur kvenna sem Anna segir að rekja megi allt aftur fyrir þar síðustu aldamót. Þá stundaði Kristín Vídalín Jacobsen myndlistanám í Kaupmannahöfn, fyrst íslenskra kvenna. Hún náði ekki að ljúka námi því hún veiktist af berklum og var um tíma vart hugað líf. Á sjúkrabeðinu sór hún þess eið að kæmist hún til heilsu á ný myndi hún vinna við að styðja veika og sjúka.

Málverk af Kristínu Vídalín Jacobsen sem stofnaði kvenfélagið Hringinn árið 1904.
Kristín Vídalín Jacobsen stofnaði kvenfélagið Hringinn árið 1904.

Svo fór að Kristín náði heilsu og í janúar 1904 fékk hún 46 vel settar konur úr höfuðborginni á stofnfund Kvenfélagsins Hringsins. Helsta markmið félagsins varð fljótt að leggjast á árarnir í baráttunni við Hvíta dauða, berklana, sem á þessum tíma gengu yfir landið sem faraldur.

Keyptu Kópavog og ráku bú og hressingarhæli

Kvenfélagið keypti Kópavogsjörðina og byggði þar Kópavogshælið, hressingarhæli fyrir berklasjúklinga. Hælið ráku Hringskonur til ársins 1940 og stunduðu búskap á jörðinni til ársins 1948.

Gömul mynd af Kópavogshælinu.
Hringskonur byggðu og ráku Kópavogshælið fyrir berklasjúklinga til ársins 1940.

Þegar berklafaraldurinn var í rénun í kring um 1940 gáfu þær íslenska ríkinu hælið og jörðina með og þá var ákveðið að Hringurinn beitti sér fyrir og styddi við uppbyggingu barnaspítala. Það hefur verið helsta markmið félagsins æ síðan.

Jólabasar, jólakaffi, happdrætti, jólakort, styrkir o.fl.

Í dag eru um 350 konur á öllum aldri og öllum stéttum félagskonur í Hringnum. Þær vinna í sjálfboðaliðastarfi við fjáröflun fyrir góðgerðamálefni sem tengjast börnum og unglingum en mestur hluti þess fjár sem þær safna rennur til tækjakaupa fyrir Barnaspítala Hringsins.

Jólasveinar úr handavinnu Hringskvenna
Á víðfrægum jólabasar Hringsins er m.a. seld handavinna Hringskvenna.

Hringskonur hittast á vinnufundum á mánudögum og þriðjudögum, allt árið um kring, í félagsheimili félagsins og vinna handavinnu sem seld er á víðfrægum jólabasar félagsins ár hvert, auk þess að hittast á félagsfundum yfir veturinn. Þá standa þær fyrir jólakaffi og happdrætti í Hörpu, selja jólakort, minningarkort og skartgripi, reka Veitingastofuna í anddyri Barnaspítalans, þiggja styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum og eru yfirleitt „með allar klær úti við fjáröflun,“ eins og Anna orðar það. Það eru engar smáupphæðir sem um er að ræða og augljóst að Barnaspítalinn væri ekki jafn vel búinn og raun ber vitni ef ekki væri fyrir þrotlaust starf þeirra Hringskvenna. Hringurinn kostaði m.a. umtalsverðan hluta byggingar Barnaspítalans sem opnaður var árið 2002 og frá síðustu aldamótum hafa þær gefið um einn og hálfan milljarð króna til uppbyggingar og starfsemi spítalans. „Síðasta stóra gjöfin frá félaginu var á 20 ára opnunarafmæli Barnaspítslans fyrir tveimur árum, en félagið gaf spítalanum þá laser-tæki til að brenna valbrá af börnum fyrir um 20 milljónir,“ segir Anna. Hún bætir við að í ár megi búast við rausnarlegri gjöf í tilefni 120 ára afmælis félagsins en er alls ekki fáanleg til að ljóstra því upp í hver sú gjöf verður.

Orð- og myndmerki Barnaspítala Hringsins
Orð- og myndmerki Barnaspítala Hringsins

Sjálfsagður hlutur að vernda vörumerkið með skráningu

En svo aftur sé vikið að vörumerkinu, af hverju að skrá vörumerki á borð við merki Barnaspítala Hringsins? Anna segir að það hafi einfaldlega verið litið á það sem sjálfsagðan hlut að vernda vörumerkið í kjölfarið á endurgerð þess í tengslum við 120 ára afmælið.

Að það sé sjálfsagður hlutur að vernda vörumerki með skráningu eru góð lokaskilaboð sem starfsfólk Hugverkastofunnar getur vel tekið undir.

Vörumerki V0136266 skráð 15. febrúar

Sótt var um skráningu orð- og myndmerkisins Hringurinn Barnaspítali í október og það var skráð 15. febrúar síðastliðinn í flokki 36 fyrir fjáraflanir í góðgerðarskyni.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er gott vörumerki út frá sjónarmiðum hugverkaréttar, það þarf að hafa skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki og síðast en ekki síst þarf að hafa á bak við sig skemmtilega sögu.