Fréttir
Fallist á kröfur Íslands varðandi niðurfellingu á vörumerkinu ICELAND

Áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur nú úrskurðað í áfrýjunarmáli ICELAND varðandi niðurfellingu skráningar fyrirtækisins á orðmerkinu ICELAND.
Skráningin þýddi að ICELAND hafði einkarétt á notkun orðsins Iceland fyrir ákveðnar vörur og þjónustu í löndum Evrópusambandsins.
Í stuttu máli fellst áfrýjunarnefndin í úrskurði sínum á öll meginsjónarmið Íslands og að skráningar ICELAND á vörumerkinu ICELAND skuli felldar úr gildi. Ákvörðunin er byggð á því að merkið hafi ekki sérkenni og lýsi einungis landfræðilegum uppruna. Ekki geti talist eðlilegt að skráning aðila á landaheiti verði til þess að viðkomandi geti bannað aðilum frá landinu að kynna vörur og þjónustu með vísan í uppruna. Orðið ICELAND er því samkvæmt úrskurðinum laust fyrir íslenska aðila til að lýsa uppruna vöru og þjónustu.
Málið er mjög forvitnilegt og fordæmisgefandi og mun líklega hafa mikil áhrif í alþjóðlegum hugverkarétti, ekki bara í Evrópu.
Nánari upplýsingar er að finna í fréttatilkynningu um málið á vef Stjórnarráðsins.
