Fréttir
„Geri það sem gerir mig hamingjusama“ – Bríet á vörumerki mánaðarins í nóvember

Bríet er nafn sem flest kannast við, enda hefur þessi unga tónlistarkona á skömmum tíma skapað sér sess sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar. Hún sótti nýlega um skráningu á orð- og myndmerkinu BRÍET og starfsfólk Hugverkastofunnar hefur nú valið það vörumerki nóvembermánaðar.
Þegar Bríet er beðin um að segja aðeins frá sjálfri sér segist hún vera ung, leitandi kona sem reyni að gera það sem geri hana hamingjusama. Hún sé héðan og þaðan, frá Íslandi og Egyptalandi, alin upp í Grafarvogi og Laugardalnum og búi í Vesturbænum. Ótal margt hafi haft áhrif á sig í æsku og gert sig að þeim listamanni sem hún sé í dag en tónlist hafi alltaf búið til mikilvæg augnablik, umræður og skemmtun í hennar lífi. Hún minnist sérstaklega á dýrmætar stundir með pabba sínum þar sem þau stúderuðu tónlist og hann kenndi henni á gítar.
„Ég hef sótt í þá orku sem tónlistin gefur mér frá því að ég man eftir mér“

“Kveðja, Bríet” besta plata ársins 2021
Bríet var ekki gömul þegar henni skaut upp á stjörnuhimininn enda er hún aðeins 24 ára. Fimmtán ára byrjaði hún að spila jass og dinner-tónlist á veitingastöðum og aðeins sautján ára gaf hún út eigið efni sem strax vakti mikla athygli og varð til þess að hún ákvað að einbeita sér að tónlistinni. Fyrsta plata Bríetar “Kveðja, Bríet” var valin besta plata ársins á Íslensku Tónlistarverðlaunum 2021 og sama ár var hún valin söngkona og textahöfundur ársins.
Aðspurð hvort hún hafi alltaf ætlað sér að verða tónlistarkona neitar hún því og segist bara hafa fylgt flæðinu. Hún hafi í reynd aldrei planað ferilinn enda hafi allt gerst svo hratt. Hún hafi heldur aldrei sótt sér formlega menntun í tónlist, þó hún semji og flytji tónlist sína á ýmis hljóðfæri.
Eldri og þroskaðri Bríet að vinna að nýrri plötu
Bríet er nú á fullu við að skipuleggja tónleika sem hún heldur í Hörpu 17. desember næstkomandi, þar sem hún mun spila eigið efni í bland við jólalög. Hún eyðir líka miklum tíma í hljóðveri við að semja efni sem hún segir að mögulega muni þróast út í plötu.
„Ég er komin með ákveðið sound sem heillar mig og mig langar til að vinna í. Ég reyni bara að vera trú tilfinningunni“
Fólk muni þekkja Bríet í nýja efninu en auðvitað hafi hún þroskast frá því hún gaf út sína fyrstu plötu og fólk muni skynja að tónlistin á mögulegri nýrri plötu sé samin af eldri Bríet.

Nafnið afgerandi vörumerki
En af hverju sótti Bríet um skráningu á vörumerki? Hún segir að það sé í raun eðlilegur og mikilvægur hluti af vinnu hennar sem tónlistarmanns. Nafnið sé orðið að fyrirtæki og afgerandi vörumerki sem hún sé að byggja markvisst upp. Það sé mjög mikilvægt að setja minningu um sig í ákveðið form sem fólk geti tengt við og viti að tákni hana og hún eigi og bara hún. Með skráningu sé hún líka að koma í veg fyrir að aðrir geti nýtt sér hennar nafn og vörumerki í eitthvað sem hún væri ekki sátt við.
Hannað af Þorgeiri Blöndal
Það var Þorgeir Blöndal sem hannaði merkið, en hann hefur séð um alla hönnun og grafík fyrir Bríet undanfarin ár. Hugmyndin að merkinu kom upp í samtölum þeirra tveggja og Halldórs Karlssonar, þáverandi kærasta Bríetar. Þau vildu hafa ákveðið japanskt yfirbragð yfir merkinu, það væri greinilegt fyrir hvað það stæði en fólk þyrfti samt örlítið að rýna í merkið til að skilja það. Það er óhætt að segja að þeim hafi tekist vel upp.

Vörumerki V0130039 skráð 15. október
Sótt var um skráningu á orð- og myndmerkinu BRÍET til Hugverkastofunnar í apríl á þessu ári og það skráð í október fyrir framleiðslu á tónlist, fatnað, myndbönd, og margs konar aðrar vörur og þjónustu í flokkum 9, 10, 16, 25 og 41.
Starfsfólk velur vörumerki mánaðarins
Vörumerki mánaðarins er nýtt framtak hjá Hugverkastofunni, unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýrra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki.
