Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

„Hjá okkur svarar manneskja í símann“ – Sunna er skráð vörumerki desembermánaðar

20X30cm Sunna 6348

20. desember 2024Vörumerki

„Maður þarf náttúrulega að vera hálfbilaður til að stofna fyrirtæki,” segir Þórir Harðarson, fósturfræðingur og einn stofnenda Sunnu frjósemistofu og bætir við að sennilega hafi það verið ágætt að hann hafi ekki gert sér grein fyrir öllum þeim atriðum sem þarf að gæta að við stofnun og rekstur fyrirtækis, áður en farið var af stað með Sunnu.

Sunna er hluti af Evuhúsi, nýju kvenheilsusetri sem er staðsett í Urðarhvarfi 8, stóra húsinu á horninu á Breiðholtsbraut og Elliðavatnsvegi sem lengi vel leit út fyrir að yrði ókláraður minnisvarði um hrunið en hýsir nú fjölbreytt fyrirtæki sem mörg hver starfa í heilbrigðisgeiranum. Sunna er skráð vörumerki desembermánaðar hjá Hugverkastofunni. Við skruppum í heimsókn í Urðarhvarfið og spjölluðum við Þóri um fyrirtækið og vörumerkið.

Orð- og myndmerkið Sunna
Orð- og myndmerkið Sunna

Nýta áratuga reynslu á sviði frjósemisþjónustu

Evuhús kvenheilsusetur er nokkurs konar regnhlíf fyrir tvenns konar þjónustu. Annars vegar Eddu læknastofur og hins vegar Sunnu frjósemistofu. Sunna var stofnuð fyrir um ári síðan og aðaleigendur eru Þórir og eiginkona hans, Ingunn Jónsdóttir, kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir. Þau eru bæði hokin af reynslu á sviði frjósemisþjónustu og kvensjúkdómalækninga. Þórir er með doktorsgráðu í fósturfræði frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og Ingunn er með áratuga reynslu af frjósemislækningum, bæði frá Íslandi og Svíþjóð. Þórir segir að sú hugmynd hafi sífellt orðið áleitnari hjá þeim hjónum undanfarin ár að þau ættu að nýta þessa reynslu og þekkingu til að stofna eigið fyrirtæki. Upphaflega hafi ætlunin verið að gera það bara tvö en fyrir tilviljun hafi þau frétt af því að Ósar hf., sem m.a. eiga Icepharma og Parlogis, væru að leita eftir tækifærum á sviði kvenheilsu og blessunarlega hafi þau stofnað til samstarfs við fyrirtækið. Þannig geti þau einbeitt sér að því sem þau kunni best en Ósar sjái um ýmsa stoðþjónustu, svo sem fjármál, starfsmannamál, markaðsmál o.fl.

Viljum halda skjólstæðingum okkar vel upplýstum í gegnum allt ferlið

Innan Eddu reka þrír kvensjúkdómalæknar læknastofur en hjá Sunnu starfa átta sérfræðingar á sviði frjósemisþjónustu. Þar er veitt öll almenn frjósemisþjónusta, svo sem við glasafrjóvganir og tæknisæðingar. Aðspurður hvort það sé ekki erfitt að skapa sér nafn og vörumerki á þessu sviði þar sem bæði lagalegar og siðfræðilegar takmarkanir eru á auglýsingum og annarri markaðsstarfsemi segir Þórir svo vissulega vera. Þetta sé að mörgu leyti sérstakur bransi og það taki langan tíma að byggja upp viðskiptavild og ná í viðskiptavini. Það sé mikilvægt að skapa sér sérstöðu allt frá byrjun og afla trausts. 

„Við erum auðvitað ekki að selja bíla eða hamborgara og verðum að haga okkar markaðsstarfi þannig að það hæfi starfseminni."
Quote Icon

Þau leggi mikla áherslu á góða og persónulega þjónustu og það hafi verið meginstefið í stefnumótunarvinnu sem þau fóru í með Hvíta húsinu í tengslum við stofnun fyrirtækisins. „Þetta þýðir t.d. að við hringjum í skjólstæðingana okkar frekar en að senda þeim tölvupóst og hjá okkur svarar manneskja í símann,“ segir Þórir. „Við leggjum líka mikla áherslu á að halda skjólstæðingum okkar vel upplýstum í gegnum allt ferlið. Það skiptir fólk miklu máli því þessi vegferð er ein sú mikilvægasta sem fólk leggur í, í lífinu og fólk þarf að finna að við berum virðingu fyrir því.“  Það sé mjög mikilvægt að allt markaðsstarf sé vandað og að tekið sé tillit til þess hvers eðlis þjónustan er. „Við erum auðvitað ekki að selja bíla eða hamborgara og verðum að haga okkar markaðsstarfi þannig að það hæfi starfseminni. Við birtum ekki auglýsingar á flettiskiltum eða forsíðu Moggans,“ segir Þórir. „Okkar markaðsstarf felst fremur í að veita góðar upplýsingar á vefnum, fá umfjallanir góðra viðskiptavina og deila upplýsingum á samfélagsmiðlum. En fyrst og fremst felst markaðssetningin í að veita góða þjónustu og skapa þannig gott umtal.“

Þórir Harðarson, fósturfræðingur og einn stofnenda Sunnu frjósemistofu
Þórir að störfum á Sunnu frjósemisstofu

Nöfnin afrakstur viðamikillar ímyndarvinnu

Varðandi nöfnin Evuhús, Eddu og Sunnu segir Þórir að þau séu öll niðurstaða mikillar ímyndarvinnu með Hvíta húsinu. Snemma hafi verið ákveðið að nöfnin þyrftu að hafa kvenlega ímynd og byggja undir traust en í byrjun hafi þau verið með um 100 ólík nöfn til skoðunar. Eftir allskonar vangaveltur og rannsóknir hafi 4-5 nöfn þótt best. Sum duttu út vegna lénaskráninga og vörumerkjaskráninga og að lokum stóðu þessi þrjú upp úr og þau séu mjög ánægð með niðurstöðuna. Orð- og myndmerkin Evuhús, Edda og Sunna eru hönnuð af Stefaníu Þórisdóttur og Elínu Maríu Halldórsdóttur, grafískum hönnuðum hjá Ósum. Þórir segir að merkin séu í takti við annað markaðs- og upplýsingaefni fyrirtækisins, þau séu frekar hlutlaus en þó með ákveðin mjúk sérkenni.

Stefna á Bandaríkjamarkað

Verið er að skoða skráningu vörumerkjanna á erlendum mörkuðum enda segir Þórir að þau horfi út fyrir landsteinana í starfseminni. „Það væri t.d. mjög hagstætt fyrir Bandaríkjamenn að sækja þjónustu til okkar. Bara það að sækja lyfin sem þarf til við frjósemismeðferðir hingað, gæti eitt og sér borgað fyrir ferð til Íslands. Við stefnum klárlega á þennan markað enda sækja nú þegar margir Bandaríkjamenn þessa þjónustu til Kanada og Mexíkó. Flug til Íslands tekur svipað langan tíma og margt innanlandsflug í Bandaríkjunum, þannig að þetta er vissulega markaður sem við stefnum á. Eitt fyrsta skrefið í þá átt er að skrá vörumerkin,“ segir Þórir.

Hvar eiga rafmagnsinnstungurnar að vera?

Aðeins eru nokkrar vikur síðan Sunna hóf starfsemi sína. Þórir segir að starfsemin hafi gengið vonum framan og það hafi komið honum á óvart hversu miklum velvilja þau hafi mætt hjá öllum sem þau hafi þurft að hafa samskipti við í tengslum við stofnun fyrirtækisins og hjá viðskiptavinum. Það hafi líka komið honum á óvart hversu mörgum smáatriðum þurfi að gæta að þegar nýtt fyrirtæki er stofnað, allt frá því að skrá vörumerki að því að ákveða hvar rafmagnsinnstungur eigi að vera í eldhúsinu. Það er þó ekki að sjá annað af aðstöðu fyrirtækisins í Urðarhvarfinu og af vef fyrirtækisins en að þeim hafi tekist vel upp með smáatriðin sem skipta oft öllu máli að lokum.

Microscope

Vörumerki V0135293 skráð 15. desember

Sótt var um skráningu orð-og myndmerkisins Sunna í júlí og það var skráð 15. desember síðastliðnum í flokkum 42 og 44, m.a. fyrir heilbrigðisþjónustu, lyf, frjósemisþjónustu, tæknisæðingu og glasafrjóvganir. Orðmerkið Sunna (V0133972) var skráð í sömu flokkum 15. júní

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er gott vörumerki út frá sjónarmiðum hugverkaréttar, það þarf að hafa skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki og síðast en ekki síst þarf að hafa á bak við sig skemmtilega sögu.