Fréttir
Hvað er hangikjöt án grænna bauna? ORA er skráð vörumerki nóvembermánaðar

Vörumerkið ORA hefur verið óaðskiljanlegur hluti af íslenskri matarmenningu í yfir sjö áratugi og mörg eiga erfitt með að hugsa sér jólin án meðlætis frá ORA á hátíðarborðinu. Fyrirtækið, sem á rætur að rekja til ársins 1952, var stofnað af Tryggva Jónssyni til að framleiða endingargóða og heilnæma, íslenska matvöru. Um 150 vörur eru nú framleiddar undir merkjum ORA sem er hluti fyrirtækisins Myllan-ORA ehf. Orð- og myndmerkið ORA er vörumerki nóvember mánaðar hjá Hugverkastofunni.
Líklega halda mörg að ORA sé skammstöfun á lengra nafni sem smám saman hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir eigin skammstöfun en í raun er ORA latneskt orð sem þýðir strönd eða strandlína. Á máli hugverkaréttar má því segja að ORA sé vísbendandi vörumerki sem vísar bæði til hafsins, en fyrirtækið var upphaflega stofnað til að vinna og selja niðursoðnar fiskafurðir, og til strandríkisins Íslands.
Grænu baunirnar eru þurrkaðar fyrir niðursuðu
Kjartan Óli Guðmundsson er vöruþróunarstjóri ORA. Hann hefur unnið hjá fyrirtækinu síðan árið 2020 þegar hann var fenginn til að veita ráðgjöf varðandi vöruþróun. Hann er menntaður matreiðslumaður en útskrifaðist árið 2016 sem vöruhönnuður úr Listaháskólanum. Í starfi sínu hjá ORA fær hann tækifæri til að sameina þessi tvö áhugamál sem hann hefur menntað sig í: vöruhönnun og matreiðslu.

Kjartan segir að eðli málsins samkvæmt sé mikið að gera hjá ORA á þessum tíma árs. Salan taki ávallt mikinn kipp í kring um jólin og reyndar aðrar hátíðir líka. Það skal engan undra enda hvað er hangikjöt án grænna bauna eða hamborgarhryggur án rauðkáls og maíss?
Kjartan segir að mest selda vara fyrirtækisins, sem sé orðið nokkurs konar vörumerki ein og sér, séu grænar, niðursoðnar baunir. Hann ljóstrar því upp að á bak við sérstakt bragð og áferð þeirra sé ákveðið leyndarmál. Baunirnar sem soðnar eru niður í Kópavoginum koma nefnilega þurrkaðar frá Bandaríkjum. Það má rekja þá sögu allt aftur til haftaáranna eftir seinni heimsstyrjöldina þegar erfitt var að fá ferskar eða frosnar grænar baunir. Í dag er þessi þurrkun hluti af ástæðunni fyrir vinsældum ORA baunanna. Hann segir að fyrirtækið hafi eitt sinn prófað að skipta þurrkuðu baununum út fyrir frosnar baunir en viðskiptavinunum hafi líkað það illa, það hafi vantað ORA-bragðið og fyrirtækið hafi fljótt ákveðið að halda í þetta sérkenni.
Sjálfur segist Kjartan eitt sinn hafa viljað bjóða upp á baunir sem ekki voru niðursoðnar á jólahlaðborði sem hann sá um en fljótt orðið afturreka með þær og orðið að drífa sig út í búð til að kaupa ORA baunir til að koma í veg fyrir uppþot meðal veislugesta.
Niðursuða snilldaraðferð
Aðspurður af hverju hann haldi að ORA vörurnar séu svona vinsælar segir hann að það snúist mikið um nostalgíu. Bragð sé lærð hegðun og við munum öll eftir og sækjumst eftir bragði sem við kynntumst sem börn. ORA vörurnar hafi fylgt þjóðinni í langan tíma. Það megi heldur ekki gleyma því að ORA framleiði gæðamatvæli úr mjög góðu hráefni og með litlum aukaefnum.

Kjartan vill meina að niðursuðuvörur almennt hafi fengið á sig rangan stimpil sem mikið unnin matvæli. Þetta sé kannski m.a. vegna þess að auðvitað hafi í gegnum tíðina mikið verið framleitt af vondum niðursuðumat þar sem fyrst og fremst var horft á endingu. Staðreyndin sé hins vegar sú að niðursuða sé snilldaraðferð til að verka og geyma mat, niðursoðinn matur sé lítið unninn, innihaldi yfirleitt fá ef nokkur aukaefni og sé mjög næringarríkur. Ákveðnar vörur verði t.d. bara betri við niðursuðu, svo sem ýmiss konar kássur, súpur, confit o.fl. ORA fiskbúðingurinn og fiskibollurnar séu t.d. nánast bara hreinn fiskur með smá kartöflumjöli til bindingar. Þá sjóði ORA mikið niður í áldósir sem séu einhverjar umhverfisvænustu umbúðir sem kostur er á því álið má endurvinna endalaust.
„Fólk hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig mat ORA framleiðir“
„Það er mikil hefð á bak við ORA vörurnar og fólk hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig mat ORA framleiðir,“ segir Kjartan.
Vinsælustu vörur ORA eru niðursoðnar grænar baunir, maís og síld. Kjartan segir að ORA maísinn þyki sérstaklega bragðgóður. Mögulega sé það m.a. vegna þess að hann sé soðinn aðeins meira en annar niðursoðinn maís og sé þess vegna mýkri, enda styðjist ORA við strangari reglur varðandi öryggi og geymsluþol en alþjóðlegir staðlar geri ráð fyrir.
Varðandi vöruþróun setur ORA merkið ákveðnar skorður og það eru ákveðnar vörur sem fólk vill sjá niðursoðnar og aðrar ekki. Íslendingar kaupa t.d. gjarna niðursoðna tómata en síður súpur. Kjartan vill þó frekar halda áfram að þróa og framleiða gæðavörur en að keppa við ódýrar, innfluttar niðursuðuvörur. Nýlega hófu þau sölu á sultuðum lauk sem hefur verið mjög vinsæll og á villisveppasúpu. Fram undan er svo markaðssetning á kjötbollum í brúnni sósu og í tómatsósu.
Það er ljóst að þó ORA vörumerkið sé komið til ára sinna er það í sífelldri endurnýjun og mun án efa verða á hátíðarborðum landsmanna um ókomna tíð.

Vörumerki V0013317 skráð árið 1984
Orð-og myndmerkið ORA var skráð árið 1984 og er nú skráð í flokkum 29, 30, 31 og 32, m.a. fyrir kjöt, fisk, soðna ávexti, sultur og grauta. Það var síðast endurnýjað 1. október 2024.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins
Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er gott vörumerki út frá sjónarmiðum hugverkaréttar, það þarf að hafa skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki og síðast en ekki síst þarf að hafa á bak við sig skemmtilega sögu.
