Fréttir

Lubbi heillar íslensk börn og foreldra

Eiríkur Sigurðsson17. október 2024Vörumerki
Lubbi (2)

Foreldrar sem eiga börn á leik- og grunnskólaaldri kannast sennilega mörg við Lubba. Það kom berlega í ljós þegar starfsfólk Hugverkastofunnar valdi vörumerki október-mánaðar, þar sem Lubbi vann afgerandi sigur í kosningum. Þessi glaðlyndi, lopapeysuklæddi íslenski fjárhundur sem þeytist um landið í leit að málbeinum hefur notið mikilla vinsælda í leikskólum landsins undanfarin ár. Nýlegir þættir í Sjónvarpi Símans hafa svo lyft honum hátt upp á stjörnuhimininn hjá íslenskum börnum þar sem hann hefur jafnvel skotið heimsfrægum erlendum teiknimyndum ref fyrir rass.

Fyrir okkur hin, sem eldri erum og höldum að Bubbi byggir og Tommi togvagn séu enn heitustu teiknimyndahetjur barnanna, hver er eiginlega þessi Lubbi og hvaðan kemur hann?

Lubbi er vörumerki október-mánaðar

Að baki Lubba standa talmeinafræðingarnir Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir. Við spjölluðum við Þóru í tilefni þess að nýskráða orð- og myndmerkið fyrir Lubba var valið vörumerki október-mánaðar hjá Hugverkastofunni.

Eyrún, Þoóra og Lubbi á American Speech-Language-Hearing Association
Eyrún, Þóra og Lubbi á ráðstefnu American Speech-Language-Hearing Association

Þóra segir að þær Eyrún hafi unnið saman hjá Talþjálfun Reykjavíkur þegar þær hafi fengið þá hugmynd að skrifa bók þar sem einblínt væri á málhljóðin, fremur en bókstafi. Bókin var einnig hugsuð sem hugmyndagrunnur fyrir talmeinafræðinga í talþjálfun barna og sem kennsluefni fyrir leikskólabörn. Þær létu ekki sitja við orðin tóm, fengu með sér landsliðið í vísnagerð og teikningum: Þórarinn Eldjárn og Freydísi Kristjánsdóttur og saman unnu þau bókina „Lubbi finnur málbein“. Fyrirmyndin að Lubba er fengin frá Litla-Árskógi á Árskógsströnd, þar sem Vigfús Kristjánsson, móðurafi Eyrúnar bjó. Hann átti einkar duglegan fjárhund, svartan og hvítan að lit og afar ljúfan, sem börn tóku miklu ástfóstri við, þar á meðal Eyrún sem dvaldi reglulega í sveitinni hjá afa sínum og ömmu á sumrin.

Hreyfingar og vísnalag með hverju hljóði

Hugmyndin á bak við bókina er að börn læri best af leik og söng og efni hennar er m.a. sótt í doktorsverkefni Þóru frá árinu 2008 þar sem hún rannsakaði í hvaða röð börn tileinka sér íslensku málhljóðin. Fyrir bókina þróuðu þær stöllur táknrænar hreyfingar nálægt munninum (talfærunum) þar sem athafnir eru tengdar við samhljóð og tilfinningar við sérhljóð. Hugmyndin sótti að sumu leyti innblástur erlendis frá því víða hafa hreyfingar verið tengdar við myndun málhljóða til að hjálpa börnum að tileinka sér hljóðin. Lubbi sjálfur gerði síðan útslagið og er tvímælalaust lykillinn að vinsældum fjárhundsins í augum barnanna.

Hverju hljóði fylgja vísur eftir Þórarinn Eldjárn sem hægt er að syngja við lög sem öll leikskólabörn þekkja, um leit Lubba að málbeinum sem ber hann vítt og breitt um Ísland. Höfundar sömdu sögurnar í bókinni og lögðu m.a. áherslu á íslenska náttúru sem Freydís myndskreytti listilega. Bókin styður við málörvun barna á markvissan og skemmtilegan hátt, þar sem börnin eru hvött til að taka þátt með bæði hljóðum og hreyfingum. Lubbalögin er nú öll að finna á Spotify og Youtube þar sem þau eru sungin af Skólakór Kársness.

Notuð í flestum leikskólum

Lubbaævintýrið fór hægt af stað en sprakk út á nokkrum árum enda voru höfundar hennar duglegir við að kynna bókina í leikskólum og á ráðstefnum og fundum um talmeinafræði og menntamál, hér á landi og erlendis. Bókin og efni sem henni tengist er nú mikið notað í flestum leikskólum landsins og margir talmeinafræðingar styðjast við Lubbaefnið í talþjálfun.

„Lubbi hefur öðlast sjálfstætt líf“

„Það má segja að Lubbi hafi öðlast sjálfstætt líf,“ segir Þóra. „Við vitum að hann er notaður víða til að kenna margt annað en málhljóðin, svo sem orðaforða, hugtök, liti og til að brúa bilið milli málhljóða og bókstafa í lestrarkennslu. Til er stórt samfélag á Facebook þar sem fólk deilir hugmyndum og ráðum um hvernig nota megi Lubba í kennslu og við vitum að ákveðinn hundabangsi í IKEA selst yfirleitt fljótt upp því honum svipar til Lubba,“ segir hún. Í kjölfar vinsælda bókarinnar hefur ýmislegt annað fræðsluefni verið gefið út af Lubbasmiðjunni, þar á meðal mynda- og verkefnaspjöld fyrir talmeinafræðinga og kennara og vinnuborð Lubba þar sem lagður er grunnur að lestri og ritun.

35 sjónvarpsþættir

Þóra segir að þótt þær séu mjög ánægðar með að Lubbi nýtist í alls konar kennslu þá vilji þær fá að hafa hönd í bagga með hvernig hann er notaður og þá sérstaklega þegar ætlunin er að nýta hann í viðskiptalegum tilgangi. Aðspurð segir hún að hugmyndina að skráningu vörumerkisins megi rekja annars vegar til þess þegar þáverandi dagskrárstjóri Símans hafði samband við þær og stakk upp á því að framleiddir yrðu sjónvarpsþættir um Lubba og hins vegar þegar einstaklingur sem hafði hannað Lubba-spil hafði samband við þær til að fá leyfi til að markaðssetja spilið.

„Áttuðum okkur á að við yrðum að tryggja okkur eignarréttinn á Lubba“

„Þarna áttuðum við okkur á því að yrðum að tryggja okkur eignarréttinn á Lubba svo hver sem er gæti ekki notað hann í hvað sem er, án okkar leyfis.“

Það varð úr að Síminn samdi um gerð 35 þátta um ævintýraferð Lubba um Ísland í leit að málbeinum. Þættirnir eru framleiddir af Ketchup Creative og voru frumsýndir í Sjónvarpi Símans í haust við miklar vinsældir.

Lubbi er nú orðinn 15 ára gamall, eða yfir 100 ára í hundaárum. Það er allnokkuð en það er samt ekki að sjá að hann sé neitt farinn að eldast og líklega eru ævintýri hans bara rétt að byrja.

Lubba-kennsluefni
Í kjölfar vinsælda bókarinnar hefur ýmislegt annað fræðsluefni verið gefið út af Lubbasmiðjunni.

Vörumerki V0134382 skráð 15. ágúst 2024

Sótt var um skráningu merkisins í apríl 2024, það var birt til skráningar 15. júní og skráð 15. ágúst í flokkum 9, 16, 18, 25, 28 og 41, m.a. fyrir barnabækur, fræðslu, leikföng og fatnað.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er gott vörumerki út frá sjónarmiðum hugverkaréttar, það þarf að hafa skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki og síðast en ekki síst þarf að hafa á bak við sig skemmtilega sögu.