Fréttir
Maurar eru merkilegar lífverur og auglýsingastofa í Hafnarfirðinum

„Maurar eru þekktir fyrir samvinnu,“ segir Þröstur S. Valgeirsson þegar hann er spurður að því af hverju auglýsingastofan sem hann á og stýrir beri þetta sérstaka nafn. „Þeir eru líka þekktir fyrir styrk, útsjónarsemi og ótrúlega hæfni til að leysa flókin verkefni í sameiningu og við erum lítill hópur einstaklinga sem trúir því að getum áorkað miklu meira í sameiningu en sem einstaklingar.“
Það er rétt að maurar eru mjög merkilegar lífverur og það er talið að ótrúlega náin samvinna einstaklinga innan maurabús tengist því að vinnumaurarnir, sem allir eru kvenkyns, séu erfðafræðilega meira skyldir en „venjuleg“ systkini. En nú er pistlahöfundur auðvitað kominn út í tóman nördaskap með pistilinn sem á að snúast um að orð- og myndmerki Maura er skráð vörumerki októbermánaðar hjá Hugverkastofunni.
Lítil og vilja vera lítil
Í tilefni valsins á Maurum sem vörumerki mánaðarins kíktum við í heimsókn á skrifstofur Maura í Trönuhrauni í Hafnarfirðinum. Þröstur tók þar á móti okkur ásamt hönnunarstjóranum Sverri Brynjólfssyni. Eftir skoðunarferð um húsnæðið settumst við niður til að ræða maura og auglýsingar.
Maurar eru auglýsingastofa í víðasta skilningi þess orðs, segja Þröstur og Sverrir. Starfsfólk stofunnar lítur á sig sem framlengingu markaðsdeilda sinna kúnna sem þau vinna mjög náið með. Fjöldinn á stofunni skilur þau klárlega frá maurum því starfsmenn eru fáir, aðeins fimm, en þau bæta það upp með því að kalla til annað fagfólk eins og þarf í einstök verkefni. „Við erum lítil og viljum vera lítil,“ segir Sverrir. „Við höfum starfað lengi og náið með mörgum af okkar viðskiptavinum og erum vel inni í þeirra málum, milli okkar ríkir mikið traust. Þetta er aðeins öðruvísi nálgun en að vinna bara að afmörkuðum herferðum og þetta leyfir okkur og kúnnanum að skipuleggja markaðsstarfið lengra fram í tímann og þróast með þeim,“ bætir Þröstur við.
Smíða diskókúluræðupúlt og kassettuborð
Önnur sérstaða Maura í auglýsingabransanum tengist sérstakri staðsetningu í miðju iðnaðarhverfi, innan um bílaverkstæði og lagera. Hluti húsnæðisins er nefnilega stúdíó þar sem hægt er að setja upp leikmyndir og ljósmyndaaðstöðu og smíða og búa til alls konar hluti. Þröstur segir að þau hafi áður verið í dæmigerðu skrifstofuhúsnæði en hafi langað til að geta verið meira „hands-on“ og búið til hluti í höndunum. „Það er mjög mikilvægt núna þegar gervigreindin er farin að einfalda okkur lífið á mörgum sviðum að við töpum samt ekki sköpunarkraftinum og mannlega þættinum,“ segir Þröstur og Sverrir bætir við: „Þessi angi er kannski ekki stór hluti af starfseminni en það er frábært fyrir sálartetrið að hafa tækifæri til að standa upp frá tölvunni stöku sinnum og vinna að einhverju raunverulegu með höndunum.“

Það er greinilegt að sköpunargleðin er í fyrirrúmi í stúdíóinu og þar hafa m.a. verið smíðaðir ferðabarir og innpökkunarborð fyrir Coca-Cola og diskókúluræðupúlt, kassettuborð og blýantslampi fyrir NOVA.
Vörumerkið er búið til úr mörgum hlutum sem mynda eina heild
En þá að orð- og myndmerkinu eða lógóinu sem nú hefur verið kosið skráð vörumerki mánaðarins af starfsfólki Hugverkastofunnar. Hvernig varð það til? Sverrir hannaði merkið og verður til svara: „Það urðu nýlega ákveðnar breytingar á stofunni og í tengslum við það ákváðum við að endurhanna merkið. Sem auglýsingastofa höfum við í sjálfu sér ekkert að gera með hefðbundið vörumerki eða lógó og þurfum að fara aðeins út fyrir kassann. Fólk þarf að horfa á þetta merki í smá tíma til að sjá hvað þetta er. Merkið er búið til úr mörgum hlutum sem mynda eina heild en það er líka hægt að taka það í sundur og setja saman á nýjan hátt, sem tengist kannski maurum á vissan hátt. Þetta er ákveðin formfræði sem við erum að leika okkur með þar sem hægt er að lesa á milli línanna,“ segir Sverrir.
Þröstur tekur undir þetta: „Það eru alls ekki allir sem ná þessu í fyrstu tilraun og okkur fannst það skemmtileg pæling.“
Auðvelt að sækja um skráningu
Að lokum hlýtur talið að berast að skráningunni á vörumerkinu, hvað kom til að þau sóttu um skráningu? „Það var bara pælingin að passa upp á þetta nýja vörumerki okkar, það var ekki mikið flóknara en það,“ segir Þröstur og bætir við „Ég held að það sé klárlega mjög mikilvægt að fólk verndi vörumerkin sín.“ Þetta er alveg rétt hjá Þresti.
„Ég held að það sé klárlega mjög mikilvægt að fólk verndi vörumerkin sín.“
En hvernig var reynsla þeirra af skráningarferlinu á hugverk.is? Svarið hljómar sem tónlist í eyrum samskiptastjórans „Það var bara mjög góð reynsla. Þetta var eins einfalt og þægilegt og hugsast getur.“
Einmitt! Takk fyrir þessi góðu og viðeigandi lokaorð!
