Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Rísandi alda í siglingatækni - Hefring Marine er skráð vörumerki nóvembermánaðar

DSF7148 3

27. nóvember 2025Vörumerki

„Þetta byrjaði eiginlega þannig að við þurftum að geta rökstutt með mælingum að bátarnir frá Rafnar færu betur í sjó en aðrir bátar,“ segir Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring Marine, sem nýlega hlaut titilinn Nýsköpunarfyrirtæki ársins 2025 á Nýsköpunarþingi. Fyrirtækið hefur þróað og markaðssett IMAS® snjallsiglingakerfi, sem nýtir gervigreind og rauntímagögn til að bæta öryggi, eldsneytisnýtingu og rekstur báta og smærri skipa. Hefring Marine hefur skráð vörumerki bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum og sótt um einkaleyfi á ákveðnum tæknilausnum tengdum IMAS® kerfinu.

Hefring Marine hefur nú verið valið skráð vörumerki nóvembermánaðar hjá Hugverkastofunni.

Lesa má nánar um starfsemi og tækni fyrirtækisins í frétt um Nýsköpunarverðlaunin 2025.

Skipstjórum skorti upplýsingar um líðan farþega

Karl starfaði á sínum tíma sem viðskiptaþróunarstjóri hjá bátasmíðafyrirtækinu Rafnar sem fékk Háskóla Íslands í samstarf við að mæla hvernig bátar fyrirtækisins færu í sjó og gera samanburð við báta með öðru skrokklagi. Í ljós kom að bátar Rafnar stóðu sig einstaklega vel en niðurstöðurnar vöktu líka spurningar. Höggin sem mældust í öðrum bátum, eins og hraðbátum sem notaðir eru í hvalaskoðunarferðum, reyndust oft mjög þung.

Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Hefring Marine. Mynd: Golli.
Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Hefring Marine. Mynd: Golli

„Við  Björn Jónsson og Magnús Þór Jónsson, prófessor í vélaverkfræði við HÍ, komum að þessum rannsóknum og áttuðum okkur fljótt á því að það var engin leið fyrir skipstjóra að vita hvernig farþegar sem sátu fremst í bátnum upplifðu högg af völdum öldulags,“ segir Karl. „Það varð til þess að við ákváðum að nýta niðurstöðurnar í eitthvað stærra, til að auka öryggi og bæta upplifun sjómanna og farþega.“ Úr varð að þeir félagarnir þrír stofnuðu Hefring Marine. Kröfur frá viðskiptavinum um að taka inn fleiri gögn, t.d. frá vélum og eldsneytisbúnaði, urðu svo til þess að kerfið þróaðist yfir í að verða snjallsiglingakerfi sem nýtir gervigreind  og gögn frá ýmsum skynjurum og mælitækjum um borð í bátum og skipum til að birta skipsstjórnendum og flotastjórum rauntímaleiðsögn um fjölmarga þætti sem varða öryggi, eldsneytisnýtingu, viðhald og rekstur.

Hefring var ein níu dætra Ægis og Ránar

En hvaðan kemur nafnið á fyrirtækinu? Karl segir að þeir hafi verið að leita eftir nafni sem gegnt gæti svipuðu hlutverki og Lenovo í tölvu- og Apple í tæknigeiranum. Nafni sem stæði fyrir sínu og gæti orðið gæðamerki í geiranum, nafni sem væri hvorki of langt né of stutt, hefði ekki ákveðna fyrir fram merkingu í hugum viðskiptavina og væri ekki lýsandi. „Við duttum niður á Hefring sem var ein af níu dætrum Ægis og Ránar í norrænu goðafræðinni,“ segir Karl. „Nöfn systranna lýsa mismunandi sjólagi og það má eiginlega segja að þau séu forn ‘sea-state’-skali en slíkir skalar eru notaðir í skipasmíðabransanum til að lýsa hversu mikinn sjó bátum er ætlað að þola. Hefring þýðir rísandi alda sem passaði fullkomlega við okkar sýn.“

Myndmerkið sem fyrirtækið skráði einnig nýlega er stílfærður skjöldur með öldum sem táknar bæði öryggi og tengingu við hafið. „Ég teiknaði upphaflega merkið í PowerPoint,“ játar Karl og hlær, „en það var síðan þróað áfram af danskri auglýsingastofu og loks fínstillt af Bernharði Aðalsteinssyni, hönnuði.“

„Hefring þýðir rísandi alda sem passaði fullkomlega við okkar sýn“
Quote Icon

Íslenskt víkingaþema virkar vel

Hefring Marine hefur mikið notað tengingu við víkinga í sínu markaðsefni og Karl segir að það gagnist fyrirtækinu mikið að koma frá Íslandi. Á sýningum hafi þeir alltaf merkt básinn með íslenskum fána og það hafi vakið mikla athygli. Margir hafi staldrað við til að spjalla um Ísland, segja að þá langi að heimsækja landið eða að frænka þeirra hafi nýlega komið þaðan og orðið yfir sig hrifin. „Slíkar samræður hafa oft skapað mikilvæg tengsl og leitt til viðskipta,“ segir Karl.
Hann segir fyrirtækið þó ekki hafa viljað nota dæmigerðar landslagsmyndir af íslenskum jöklum, eldfjöllum og norðurljósum í kynningarefni fyrir fyrirtækið og þannig hafi hugmyndin kviknað að því að nota myndefni tengt víkingum við markaðssetningu. Hefring leggi mikla áherslu á Ameríkumarkað og það komi sér vel að margir Bandaríkjamenn eigi ættir að rekja til Norðurlandanna og telji sig hafa Víkingablóð í æðum. Víkingaþemað geri þeim líka kleift að nota sama markaðsefnið á öllum sýningum, því víkingar eigi alltaf við, hvort sem það er á sýningum  fyrir björgunarbáta, herskip eða skemmtibáta. „Víkingaþemað er einfaldlega myndmál sem fólk sem tengist bátum og siglingum skilur og þekkir, sama hvaðan það kemur,“ segir Björn að lokum.

Vörumerki V0138844 skráð 15. október

Sótt var um skráningu orðmerkisins Hefring Marine í júní 2025 það var birt til skráningar 15. ágúst og skráð 15. október síðastliðinn í flokki 42, m.a. fyrir ýmiskonar hugbúnað.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins 

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni, gott aðgreiningarhæfi og skemmtilega sögu að baki sér.

Rísandi alda í siglingatækni - Hefring Marine er skráð vörumerki nóvembermánaðar - Hugverkastofan