Fréttir
Smitten er vörumerki mars-mánaðar – stefnumótaapp fyrir Z-kynslóðina

Orðmerkið Smitten er vörumerki mars-mánaðar hjá Hugverkastofunni. Blaðamaður, eða öllu heldur samskiptastjóri Hugverkastofunnar, rölti yfir í næsta hús í Katrínartúninu til að spjalla við Unni Aldísi Kristinsdóttur, markaðsstjóra Smitten um vörumerkið og söguna á bak við Smitten.
Það fyrsta sem maður tekur eftir er að skrifstofur Smitten eru töff og mjög bleikar. Þar er nóg pláss og allt sem prýða þarf ungt nýsköpunarfyrirtæki: grjónapúðar, Nespresso kaffivél, Nocco-kælir og píluspjald. Í einu rýminu er risastórt Smitten-lógó á veggnum sem einhverra hluta vegna minnir mann á tyggjókúlur og gosdrykki frá því á áttunda áratungum. Það hæfir vel fyrirtæki sem hefur það yfirlýsta markmið að hanna og reka skemmtilegasta stefnumótaapp í heimi. Við settumst niður í bleikum sófa í bleika samkomurýminu þeirra þar sem þau byrja alla daga á spjalli um allt mögulegt nema vinnuna.

Meginmarkmiðið að það sé gaman
En hvað er Smitten? Samskiptastjórinn verður að játa að hann var alls ekki með það á hreinu, enda ekki af Z-kynslóðinni, sem er meginmarkhópur Smitten. Unnur segir að Smitten sé stefnumótaapp í líkingu við Tinder en samt allt öðru vísi. Markmiðið sé að það sé gaman að vera einhleypur og gaman að eiga samskipti við aðra einhleypa einstaklinga.
„Það er eiginlega aukaatriði hvort það leiði til alvarlegs sambands eða ekki, það er engin pressa á það. Meginmarkmiðið er bara að það sé gaman,“
Notendur svara t.d. ítarlegum spurningum um sig sjálf og svörin við þeim spurningum eru notuð til að búa til rétt/rangt spurningar sem áhugasamir mótaðilar geta spreytt sig á. Svörin við þessum spurningum er líka hægt að nota til að brydda upp á áhugaverðum samræðum við einstaklinga sem manni finnst áhugaverðir í appinu, en það er einmitt mikið lagt upp úr því á Smitten að notendur spjalli saman. Það er víst erfiðasta skrefið í stefnumótaöppum á borð við Tinder að hefja spjall við einstakling sem manni líst vel á. Hjá Tinder notar aðeins einn af hverjum tíu notendum möguleikann á lifandi spjalli en hjá Smitten er þetta hlutfall sex af hverjum tíu.
Byrjuðu á alvarlegu stefnumótaappi
Upphaf Smitten má rekja til alvarlegs stefnumótaapps sem hét The One og var hannað af stofnendum Smitten, þeim Davíð Erni Símonarsyni og Ásgeiri Vísi árið 2019. Þeir áttuðu sig fljótlega á því að það var ekki mikil eftirspurn eftir alvarlegu stefnumótaappi. Þvert á móti fannst mörgu ungu fólki í kringum þá þau stefnumótaöpp sem voru í boði vera leiðinleg og yfirborðsleg þar sem fólk var kannski að reyna að velja sér maka til lífstíðar út frá útliti eingöngu. Þeir settu sér því það markmið að búa til skemmtilegasta stefnumótaapp í heimi með persónulegum leikjum og gagnvirkum prófílum sem ætlað er að gera notendum auðveldara að tengjast og eiga skemmtileg samskipti.

Smitten þýðir að vera hugfanginn eða lostinn - á ensku
Merki Smitten er gert úr tveimur hjörtum sem tengjast og mynda fiðrildi, sem vísar til þess að fólk er gjarna með fiðrildi í maganum á stefnumótum. Það er er hins vegar orðmerkið Smitten sem er skráð hjá Hugverkastofunni og sem var valið vörumerki mánaðarins. Unnur segir að stofnendurnir hafi farið í gegnum urmul af mögulegum nöfnum áður en orðið Smitten varð fyrir valinu. „En þegar þeir fundu Smitten, small eitthvað, þetta var bara rétta nafnið,“ segir hún. Smitten þýðir á ensku að vera hugfanginn eða lostinn, sem passar vel við stefnumótaapp.
Smitten þýðir smit – á dönsku
Smitten var fyrst beint að íslenskum ungmennum árið 2020 og fór vel af stað. Það var því fljótt ákveðið að fara með það út í heim og byrja á Danmörku sem starfsfólk þekkti og vissi að þar bjuggu margir Íslendingar sem gætu hjálpað við að breiða út fagnaðarerindi Smitten. Það gekk ekki eins vel og heima á Íslandi.
„Það var hugsanlega versta viðskiptaákvörðun sem við höfum tekið að byrja útrásina í Danmörku. Samt, eftir á að hyggja, kom margt mjög gott út úr því og þau vandræði sem við lentum í urðu til þess að appið varð miklu betra. En lærdómskúrfan var ansi brött.“
Meðal þess sem olli þeim erfiðleikum í Danmörku er að Smitten hefur allt aðra merkingu í dönsku og öðrum Norðurlandamálum en á ensku. Þar þýðir það einfaldlega smit og þar sem þau fóru af stað í miðjum COVID-faraldrinum, héldu mörg að um væri að ræða nýtt smitrakningarapp. „Svo reyndist fjöldi ungra Íslendinga í Kaupmannahöfn frekar vera galli en kostur. Þeir þyrptust inn á appið en svöruðu spurningunum náttúrulega bara á íslensku og áttu sín samskipti á íslensku, sem varð til þess að Danir héldu í upphafi að þetta væri samskiptaapp fyrir Íslendinga.“

Áhrifavaldar á TikTok reynst vel
Reynslan frá Danmörku varð til að margs konar breytingar voru gerðar á appinu og það var ýmislegt prófað í markaðsmálum. Sumt virkaði og annað ekki en þau ákváðu strax að gefast ekki upp á nafninu heldur nýta orðaleikinn sem gat falist í því að það héti smit á dönsku, enda getur fólk hæglega smitast af áhuga og jafnvel ást. Þau gerðu m.a sjónvarpsþátt sem hét Let‘s get Smitten, buðu í Date Cruise og til Speed Dating viðburðar, mættu á tónlistarhátíðir, bjuggu til partýspil og marg fleira. Það var þó ekki fyrr en þau fóru að nýta sér áhrifavalda á TikTok að hjólin fóru virkilega að snúast hjá þeim í Danmörku og notendum að fjölga.
80.000 virkir notendur á viku
Næst var ráðist til atlögu við Svíþjóð í október 2022. Það hafði tekið langan tíma að ná í 5.000 virka notendur í Danmörku en á grunni reynslunnar þaðan tók það aðeins eina helgi að ná þeim fjölda notenda í Stokkhólmi. Í kjölfarið var ráðist á Noreg í mars í fyrra og nú eru virkir notendur orðnir 80.000 á Norðurlöndunum. Næst á dagskrá er svo að prófa að herja á nokkrar borgir í Bandaríkjunum til að sýna fjárfestum fram á að Smitten geti sigrað heiminn, áður en ráðist verður í næstu umferð fjármögnunar meðal alþjóðlegra fjárfesta.
Trúum því að við séum að hjálpa fólki
Unnur segir að það sé auðvitað sjúkleg áskorun að sigra heiminn og að það sé ástæða fyrir því að það sé kannski ekki verið að stofna alþjóðleg stefnumótaöpp hægri, vinstri. Samkeppnin sé hörð og það sé ekki auðvelt að vekja athygli á þessum markaði og ná þeim krítíska massa notenda á hverjum stað sem þarf til að appið virki almennilega. En starfsfólkið hafi allt gríðarlega trú á verkefninu og þau vinni á skemmtilegasta vinnustað í heimi. „ Við erum að þessu til að hafa jákvæð áhrif á fólk og trúum því að við séum að hjálpa fólki við að hitta annað fólk en líka við að njóta þess að vera einhleypt. Í hverri viku fáum við fréttir af fólki sem við höfum hjálpað til að hittast sem er jafnvel að giftast eða eignast börn saman eftir að hafa kynnst á Smitten. Það gerir allt erfiðið þess virði að heyra slíkar sögur,“ segir hún að lokum.
Vörumerki V0130223 skráð 15. mars
Sótt var um skráningu merkisins Smitten í apríl 2023, það var birt til skráningar 15. janúar og skráð 15. mars síðastliðinn í flokkum 9, 35, 38, 42 og 45, m.a. fyrir hugbúnað, samfélagsmiðla, smásölu o.fl. Á grundvelli landsskráningar hér á landi hefur einnig verið sótt um skráningu í Evrópusambandinu, Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum í flokkum 9 og 45.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins
Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki.
