Fréttir

Það tekur 12 ár að búa til 12 ára viský

Eiríkur Sigurðsson24. október 2023Vörumerki
Egill

Vörumerki október-mánaðar hjá Hugverkastofunni er orðmerkið Flóki. Það er í eigu Eimverks ehf. og er notað fyrir íslenskt viský sem bruggað er í Garðabænum úr byggi frá Bjálmholti við Hellu.

Egill Gauti Þorkelsson er einn eigenda og starfsmanna þessa 10 manna fjölskyldufyrirtækis. Hann segir að nafnið Flóki sé tilvísun í Hrafna-Flóka og sögu norrænna manna sem landkönnuða sem hafi ekki farið troðnar slóðir. Flóka viskýið sé sérstakt og þróað frá grunni af stofnendum Eimverks sem hafi farið eigin leiðir við þróunina og haft það markmið að búa til gott íslenskt viský úr íslenskum hráefnum, frekar en sæmilega íslenska eftirlíkingu af skosku viskýi.

Hægt að gúgla hvernig maður býr til viskýSögu Flóka viskýsins má rekja aftur til ársins 2009 þegar hugmyndin um að brugga viský kom fyrst fram hjá Agli, föður hans og bræðrum þegar þeir voru að velta fyrir sér hvað væri hægt að gera við byggið sem þeir ræktuðu á ökrum á Suðurlandinu. Fyrirtækið stofnuðu þeir árið 2011. Aðspurður hvort þeir hafi haft einhverja þekkingu á viský-gerð svarar hann því neitandi en segir að aðgengi að upplýsingum sé þannig í dag að maður geti einfaldlega gúglað: „how to make a good whiskey“ og fengið ítarlegar leiðbeiningar um ferlið. „Í eðli sínu er einfalt að búa til viský en það er samt ótrúlega erfitt að búa til gott viský því það er svo margt sem getur haft áhrif á bragðið,“ segir hann. Þó að þeir feðgar hafi ekki þekkt mikið til viskýframleiðslu í byrjun hafi þeir allir haft þekkingu á framleiðsluferlum og reynslu af bruggun allskonar heimagerðra drykkja, sem hafi hjálpað þeim af stað. Þeir hafi þó samtals þurft að gera 163 tilraunir til að finna út hvernig best væri að nota sykurlítið íslenskt bygg til að búa til gott viský.

Flóki viský
Flóki viský

Fyrsta flaskan seld árið 2014Þróun, framleiðsla og sala á viský er þolinmæðisvinna því eins og Egill bendir á tekur það 12 ár að framleiða 12 ára viský. Fyrsta flaskan af Flóka viský var seld árið 2014. Fyrirtækið hefur síðan aukið framleiðsluna ár frá ári og í dag framleiðir það jafngildi u.þ.b. 50.000 flaskna á ári. Viðbrögð neytenda hafa verið vonum framar. Mest er selt af viskýinu til ferðamanna í Fríhöfninni en það er hægt að kaupa Flóka viský í 20 löndum um allan heim og allt það viský sem hingað til hefur verið sett á markað hefur selst upp. Á grunni mikillar eftirspurnar er á næstu á tveimur árum áætlað að tvö- til þrefalda framleiðsluna.

Sterkt, skráð vörumerki mikilvægtEgill segir að sterkt vörumerki með góða tengingu í uppruna vörunnar og sögu sé mjög verðmætt í drykkjarvörubransanum. Tengingin við forna landkönnuði og frumkvöðla sé sterk í gegnum nafnið og útlit vörunnar. Þá hjálpi sagan á bak við vöruna líka mikið til við söluna og m.a. sú staðreynd að Eimverk sér um allt ferlið „frá byggi í bolla“, sem sé mjög sjaldgæft í þessum geira. Auk sérstakrar sögu er Flóka viskýið sérstakt vegna íslenska byggsins sem er sykurminna en það bygg sem yfirleitt er notað í viský og gefur mikið og kryddað bragð og auðvitað vegna hreina vatnsins. Viskýið hefur fengið góða dóma frá heimsþekktum viskýsérfræðingum og vann m.a. nýlega gullverðlaun í London Spirit Awards og er með yfir 90% einkunn í viskýbíblíu Jim Murray. „Markmiðið er að íslenskt viský verði í framtíðinni þekkt sem gæðavara um allan heim og nái svipaðri stöðu og japanskt viský hefur náð á undanförnum árum,“ segir Egill.

Margar gerðir af Flóka viský.
Eimverk framleiðir margar gerðir af Flóka viský, auk gins, brennivíns o.fl.

Óvæntur hliðarbisness í smökkunartúrum„Það er oft þannig að ef þú ert að gera eitthvað spennandi þá hefur fólk áhuga á því og þegar fólk frétti af viskýframleiðslu í Garðabænum fór það að banka upp á og vildi fá að smakka og fá frekari upplýsingar,“ segir Egill. Upp úr þessum heimsóknum varð til óvænt hliðarbúgrein hjá fyrirtækinu og nú býður Eimverk upp á tvo viskýsmökkunartúrar á dag sem hafa reynst mjög vinsælir meðal ferðamanna og íslenskra hópa. „Svo núna megum við loksins selja viskýið okkar sjálf beint frá verksmiðjunni samkvæmt nýjum lögum og það er opið í búðinni okkar í Garðabænum daglega.“

Vörumerki V0089689 skráð 2013
Flóka viskýið var hugsað sem útflutningsvara allt frá byrjun og vel hefur verið gætt að vörumerkjavernd á þeim mörkuðum þar sem varan er seld, enda vörumerkið ein verðmætasta eign fyrirtækisins. Sótt var um skráningu á orðmerkinu Flóki til Hugverkastofunnar árið 2013 og það skráð í ágúst sama ár fyrir viský í flokki 33 og framleiðslu á áfengi í flokki 40. Skráning merkisins var svo endurnýjuð til tíu ára í haust. Vörumerkið var skráð hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins, EUIPO, árið 2014 og sama ár var farið í alþjóðlegt ferli hjá Alþjóðahugverkastofnuninni, WIPO, á grunni íslensku umsóknarinnar, m.a. til að fá vörumerkið skráð í Kína og Bandaríkjunum.

Starfsfólk velur vörumerki mánaðarinsVörumerki mánaðarins er nýtt framtak hjá Hugverkastofunni, unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með að velja eitt vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráningar og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýrra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Vörumerki mánaðarins er gott vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að rugla því við önnur merki.