Fréttir

Þeir komu, þeir sáu og þeir væbuðu

Vefur Socialallt (3)

Hljómsveitin VÆB, skipuð bræðrunum Matthíasi og Hálfdáni Matthíasarsonum, sló rækilega í gegn í Eurovision í maí og bræddi hjörtu, innan sem utan landsteinanna. Það fyrsta sem grípur mann við VÆB er orkan, hvort sem það er á sviði, á TikTok eða í viðtölum en bræðurnir eru óhræddir við að vera þeir sjálfir. Þeir eru ekki bara listamenn, þeir eru líka vörumerki og júní er þeirra mánuður. Það var lögfræðingur á hugverka- og stjórnsýslusviði sem fékk það verkefni að taka viðtal við VÆB, eftir að samskiptastjóri stofnunarinnar sagðist „kannski aðeins of gamall“ fyrir verkefnið. Undirrituð er hins vegar síung og upp með sér að fá að spjalla við þá bræður.

Frá djóki yfir í Eurovision

Strákarnir segja að þeir séu ekki enn lentir eftir Eurovision ævintýrið, en þeim líði mjög vel, „Þetta var geggjað,“ segja þeir og bæta við að í kjölfarið hafi verið nóg um að vera, fullt af giggum og spennandi verkefni á döfinni. „Við gætum ekki verið sáttari.”  

Saga VÆB byrjar ekki í hljóðveri heldur á samfélagsmiðlum. „Þetta byrjaði allt sem djók,“ segja þeir og hlæja. „Við settum inn TikTok myndband árið 2022 og það fór af stað. Matti var búinn að vera að búa til takta og Hálfdán vildi syngja með, og svo þróaðist þetta bara áfram.“

Bræðurnir Matthías og Hálfdán eru VÆB.
Bræðurnir Matthías og Hálfdán eru VÆB.

Þetta er VÆB

„Við þurftum nafn sem fangar tónlistina okkar og það þurfti að vera eitthvað einfalt og skýrt,“ segja þeir aðspurðir um tilkomu nafnsins VÆB. „Okkur fannst enska orðið „vibe“ lýsa þessu vel, en við vildum setja okkar tvist á það og gera það að VÆB með íslensku „Æ“-i. Það er íslenskt, en alþjóðlegt í senn. Við vildum að fólk tengdi nafnið við jákvæða orku og góðan fíling eða gott vibe þegar það hlustaði á tónlistina okkar.“

Bræðrunum var ráðlagt af góðu fólki að skrá vörumerki sitt hjá Hugverkastofunni. „Ef þetta á að lifa og vaxa, þá er betra að eiga nafnið. Við vildum líka bara tryggja að enginn annar gæti notað það. Það er partur af því að taka þetta alvarlega.“

Þeir leggja mikla áherslu á að vörumerkið sé ekki bara nafn heldur gefi ákveðna heildarupplifun. „Við vildum að fólk sæi eitthvað eins og silfurlitinn, sólgleraugun eða logo-ið og hugsaði strax: Já, þetta er VÆB.“ Silfurlitur og sólgleraugu hafa orðið eitt af einkennismerkjum þeirra og er meðvitað val sem stuðlar að því að vörumerkið þeirra sé bæði auðþekkjanlegt og minnisstætt.

En þegar fólk byrjar að þekkja merkið, fylgja því og jafnvel nota það, koma líka upp spurningar um vernd. „Við höfum alveg lent í því að fólk noti merkið eða efnið okkar án leyfis,“ segja þeir. „Við reynum að leysa það í rólegheitum, höfum samband við viðkomandi og bendum á að það þurfi samþykki. Það gengur yfirleitt vel.“

Merkið er hannað af Ágústu Ragnarsdóttur, tengdamóður Matthíasar.
Merkið er hannað af Ágústu Ragnarsdóttur, tengdamóður Matthíasar.

Ímynd og útlit – ekki bara tilviljun

Þótt þeir segjast „fylgja flæðinu“ er ekkert tilviljunarkennt í ímynd VÆB. Þeir fengu til liðs við sig skapandi teymi til að útfæra útlitið. Merkið er hannað af Ágústu Ragnarsdóttur, tengdamóður Matthíasar, búningarnir af Sylvíu Lovetank og grafíkin af listamanninum Nabblakusk. 

Þeir nefna að listamenn eins og Herra Hnetusmjör, Iceguys og Ingi Bauer hafi haft áhrif á hvernig þeir nálgast uppbyggingu vörumerkisins. „Þeir hafa sýnt hvernig maður getur ýtt út sínu brandi á eigin forsendum.“

Bræðurnir í góðu væbi.
Bræðurnir í góðu væbi.

Ekki bara hugsa, gera! 

Það sem stendur upp úr eftir ævintýri síðustu ára, að sögn bræðranna, er það hversu margir krakkar eru að tengja við það sem þeir gera. Það sé gefandi að koma fram og finna tenginguna við fólk. „Svo var það alveg klikkuð stund þegar við gengum um í Ósló og fólk stoppaði okkur til að fá „selfie”. Það var moment!“

Aðspurðir hvaða ráð þeir hafa fyrir ungt fólk sem vill feta sín fyrstu skref í skapandi greinum, kemur svarið hratt og örugglega:

„Ekki bara hugsa. Gera. Þá gerist eitthvað geggjað.“

Þeir segja framtíðina vera galopna. Ný lög eru í vinnslu, tónleikahald um allt land fram undan og svo Evróputúrinn í byrjun árs 2026. Þeir ætla að fylgja tilfinningunni og sköpunargleðinni.

Undirrituð endar viðtalið í góðum fíling, komin í VÆB búninginn, með VÆB sólgleraugun og buffið, algjörlega laglaus, þó raulandi Róandi hér og róandi þar.  

Vörumerki V0137742 skráð 15. júní

Sótt var um skráningu merkisins VÆB í febrúar 2023, það var birt til skráningar 15. apríl og skráð 15. júní síðastliðinn í flokkum 9, 25, 41 m.a. fyrir sólgleraugu, fatnað og framleiðslu á tónlist.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins 

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki.