Fréttir
„Þetta er bix og mix og músík og bít“ – Moombix er skráð vörumerki febrúarmánaðar

„Ætli megi ekki segja að ég sé orðin raðfrumkvöðull,“ segir Margrét Júlíana Sigurðardóttir, stofnandi sprotafyrirtækisins Moombix, þegar hún er beðin um að segja aðeins frá sjálfri sér. Hún hefur á starfsferlinum stofnað tvö sprotafyrirtæki sem bæði tengjast tónlist. Moombix, sem ætlað er að umbylta tónlistarkennsku á netinu, er nýjasta afurðin hennar og orð- og myndmerkið Moombix hefur verið valið skráð vörumerki febrúar-mánaðar hjá Hugverkastofunni.
Það er ekki að undra að Margrét hafi fundið nýsköpunarfjölina sína í tónlist enda er hún tónlistarmenntuð og hefur m.a. stundað nám við the Royal Academy of Music í London. Hún kom heim að námi loknu árið 2006og var nýbúin að eignast dóttur og íbúð á lánum þegar hrunið skall á 2008 og ákváð þá að hún þyrfti að finna sér öruggara lífsviðurværi en tónlistina. Þannig að hún ákvað að gerast frumkvöðull! „Það er auðvitað ekkert öruggt við það að gerast frumkvöðull en þetta hlutverk og nýsköpunarumhverfið á mjög vel við mig og mér finnst ég vera algjörlega á réttum stað í dag,“ segir Margrét.

Flókið að hafa börn sem viðskiptavini
Áður hafði Margrét stofnað fyrirtæki í kringum tónlistarleikinn Mussila sem kennir börnum undirstöðuatriðin í tónfræði. Leikurinn fékk mikla athygli á sínum tíma og var Mussila m.a. valið smáforrit dagsins í App Store og hlaut norrænu EdTech verðlaunin. Þó Mussila hafi gengið ágætlega þá segir Margrét að það sé að vissu leyti flókið að hafa börn sem viðskiptavini. Bæði breytist þau hratt sem neytendur og kaupendur að vörunni séu alltaf aðrir en þeir sem nota hana. Margrét seldi sig út úr rekstrinum 2020, reynslunni ríkari, og hóf fljótlega þróun á Moombix.
„Tónlistarkennsla hefur í raun lítið breyst frá tímum Mozart“
Moombix er hins vegar þróað með fullorðna notendur í huga. Það er markaðstorg og kennslurými fyrir lifandi tónlistarkennslu á netinu, nokkurs konar AirBnB eða Uber tónlistarinnar. „Það er svo merkilegt að hefðbundin tónlistarkennsla hefur í raun lítið breyst frá tímum Mozart,“ segir Margrét. „Þessi klassíska aðferð virkar vel fyrir marga en er fælandi fyrir aðra. Það eru tækifæri til að auka aðgengi að tónlistarkennslu og byggja kennsluna meira á forsendum nemendanna, sem geta verið mjög mismunandi. Mig langar til að ná til þeirra fjölmörgu sem hafa einhvern tímann keypt sér gítar en horft á hann safna ryki úti í horni og aldrei lagt í að læra á hann. Enda er aðgengið að tónlistarkennslu fyrir fullorðna - með kennara - mjög takmarkað. Maður þarf líka að vera ansi áhugasamur til að æfa sig nógu mikið á hljóðfærið til að ná einhverjum tökum á því. Það krefst mikillar þjálfunar og með Moombix getum við nýtt tæknina til að styðja fólk í því að viðhalda áhuganum og ná árangri.“
Aðspurð segir Margrét að vissulega séu til forrit og síður á netinu sem aðstoði fólk við að læra á hljóðfæri en það komi ekkert í staðinn fyrir persónulega kennslu. „Það skiptir svo miklu máli að temja sér réttar líkamlega stöður allt frá byrjun og það er svo margt fínlegt í tónlistinni sem ekki verður kennt nema í persónulegri kennslu,“ segir hún.
Stefnt að opnun á þessu ári
Stefnt er að því að setja síðuna formlega í loftið á þessu ári og að fókusinn verði utan landsteinanna enda sé nauðsynlegt fyrir svona þjónustu að ná fljótt upp góðum fjölda viðskiptavina til að koma boltanum af stað, bæði kennurum og nemendum, og það sé erfitt á Íslandi, sökum smæðar markaðarins. „Ef Tinder hefði byrjað á Íslandi, hefði sennilega ekki orðið mikið úr því,“ segir hún og hlær. Hún er samt sem áður fullviss um að músíkalskir Íslendingar verðir fljótir að tileinka sér þessa nýju þjónustu.

Mikilvægt að gæta að fjöregginu – frumkvöðlinum sjálfum
Ungum frumkvöðlum sem eru að stíga sín fyrstu skref vill Margrét í fyrsta lagi ráðleggja að vera ófeimnir við að sækja sér ráð til þeirra reynslumeiri enda séu þetta meira og minna sömu vandamálin sem fólk sé að takast á við og rangar ákvarðanir snemma í ferlinu geti komið í bakið á fólki „Það er gríðarlega mikilvægt að leggja upp með rétt teymi. Það að koma svona fyrirtæki á legg getur verið krefjandi og það skiptir miklu máli að hafa öflugt teymi með sér á þeirri vegferð. Fólk þarf að vera tilbúið að prófa samstarf en um leið að hafa hugrekki til slíta því ef að samstarfið er ekki að ganga upp. Þetta er kannski erfiðasti parturinn af því að starfa í nýsköpun.“ Í öðru lagi ráðleggur Margrét nýjum frumkvöðlum að hafa alltaf lögfræðing sér við hlið við alla samningagerð og slíkt, hafa alla samninga skýra og tryggja gagnsæi. Að lokum hvetur hún alla þá sem koma að stofnun og fjármögnun sprotafyrirtækja að gæta vel að fjöreggi hvers nýsköpunarfyrirtækis, sem sé frumkvöðullinn sjálfur.
„Sprotafyrirtæki sem missir frumkvöðulinn sinn of snemma er oftar en ekki sjálfdautt,“ segir hún. „Verðmætið sem frumkvöðull leggur til sprotafyrirtækis verður ekki mælt í vinnustundum, reynslu eða fjármagni og þetta þurfa frumkvöðlarnir sjálfir líka að muna. Maður kaupir ekki ástríðuna út í búð og það er hún sem drífur teymið áfram og fær fólk til að trúa á verkefnið. Þessu vill fólk oft gleyma þegar peningar eru komnir í spilið. Þess vegna myndi ég ráðleggja frumkvöðlum að tryggja vel sína stöðu strax í upphafi - það er ekki aðeins hagur frumkvöðulsins sjálfs heldur hagur fyrirtækisins í heild.“
„Maður kaupir ekki ástríðuna út í búð“
Nafnið: Útvarpsþáttur í Vín, bix, mix, músík og bít
En hvaðan kom hugmyndin að þessu nafni og vörumerki? „Það er þó nokkur saga að segja frá því,“ segir Margrét. „Ég bjó í Vín 1997-1998 og hafði skráð mig þar í söngleikja- og óperettunám. Mér líkaði ekkert sérstaklega vel þar, hafði misskilið um hvað námið snerist og fannst of neikvæð og íhaldssöm stemning í borginni. Þá fékk vinkona mín, sem líka var þarna í tónlistarnámi, mig með sér í viðtal í útvarpsþætti sem bar nafnið La Boom de Luxe sem reyndist vera algjör vin í eyðimörkinni. Það var allt önnur stemmning í senunni í kringum þáttinn sem spilaði nýja tónlist og kippti manni fram um nokkrar aldir. Svo er þetta bix og mix og músík og bít auðvitað. Það voru svona hugrenningarnar að baki Moombix nafninu. Útlitið var gert í samstarfi við erlenda hönnunarstofu.
Hún segir nauðsynlegt að skrá vörumerkin sín til að vernda verðmætin sem liggja að baki. Þau ætli sér stóra hluti með Moombix og það sé mikilvægt öryggisatriði að skrá vörumerkið á helstu mörkuðum til að aðrir stökkvi ekki til þegar fyrirtækið verður þekkt og skrái vörumerkið.
Vörumerki V0131209 skráð 15. janúar
Sótt var um skráningu orð- og myndmerkisins í júlí, það var birt til skráningar 15. nóvember og skráð 15. janúar síðastliðinn í flokki 41 fyrir margs konar kennslu, þjálfun og tónlistarflutning.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins
Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki.
