Fréttir
Þrír bræður reka saman verktakafyrirtækið Eldfoss sem á vörumerki mánaðarins

Einu sinni voru þrír litlir bræður. Þegar mömmu þeirra fannst þeir vera orðnir nógu stórir bjó hún út nestispakka handa þeim, kyssti þá á kinnina og sendi þá burt til að freista gæfunnar upp á eigin spýtur. Þeir lögðu af stað allir saman. Bræðurnir voru allir með meistararéttindi í sinni iðngrein. Sá fyrsti var pípulagningameistari, annar var húsasmíðameistari og sá þriðji var múrarameistari.
Svona byrjar ævaforn saga sem hvert mannsbarn þekkir. En ólíkt ævintýrinu eru engir grísir og enginn úlfur í þeirri sögu sem hér er sögð. Þetta er nefnilega sagan af Eldfossi ehf. Félagið, sem er byggingarfélag, veitir alhliða þjónustu á sviði bygginga og sérhæfir sig í yfirborðsfrágangi, endurnýjun og viðgerðum og tekur að sér verkefni fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki og bæjarfélög. Þórður Gísli Guðfinnsson pípulagningameistari er einn eiganda byggingarfélagsins Eldfoss en félagið reka þrír bræður. Auk Þórðar eru það Andrés Pétur húsasmiðameistari og Ívar Bergþór múrarameistari.

Ekki algengt að verktakafyrirtæki sýni áhuga á hugverkaréttiJá það vill svo skemmtilega til að vörumerki maímánaðar hjá Hugverkastofunni er orð- og myndmerkið Eldfoss. Fjölskyldufyrirtækið var stofnað árið 1984 af föður þeirra bræðra sem er byggingartæknifræðingur og nú hafa bræðurnir þrír tekið við rekstrinum. Faðir þeirra, Guðfinnur Gísli Þórðarson, kemur þó reglulega að heimsækja syni sína í vinnuna, röltir um og gefur föðurleg ráð.
„Pabba fannst nafnið vera táknrænt fyrir orkuna í náttúrunni og kraft sem á vel við í fyrirtækjarekstri,“ segir Þórður aðspurður hvaðan nafnið á fyrirtækinu komi. Nafnið er íslenskt að uppruna, auðvelt að muna og bera fram. Það verður þó að segjast að það er ekki algengt að verktakafyrirtæki séu þekkt fyrir áhuga á hugverkarétti.
Þekkir dæmi um fyrirtæki sem lent hafa í vandræðumHvað kom til, af hverju sótti félagið um skráningu á vörumerki og af hverju skiptir þetta allt saman máli? „Þegar ég var að læra viðskiptafræði í HR tókum við áfanga í lögfræði og ég man að kennarinn lagði mikla áherslu á hversu mikilvægt það væri að hafa þessa hluti í lagi. Hann færði fram nokkur dæmi frá íslenska markaðinum um fyrirtæki sem hefðu lent í vandræðum með samkeppnisaðila vegna þess að þau höfðu ekki tryggt hugverkaréttindi sín.“
Þessi orð Þórðar sanna hið fornkveðna að blindur er bóklaus maður og það margborgar sig að leggja vel við hlustir í kennslustundum. Aðspurður hvort fleiri fyrirtæki í byggingargeirunum ættu að láta sig hugverkarétt varða svarar Þórður því staðfastlega.
„Algjörlega. Fyrirtæki leggja mikla vinnu í að byggja upp vörumerki sitt og það tekur langan tíma að gera það. Það væri leiðinlegt að missa það allt vegna þess að eigendur sóttu ekki um eignarrétt á vörumerkinu sínu.”
Þetta eru orð að sönnu og gætu vel verið einkunnarorð Hugverkastofunnar.
Rauðgulur fyrir eldmóð og skuldbindingu og blár fyrir vatn og samskipti og verkefnaflæðiÞórður segir að við hönnun myndmerkisins hafi þeir viljað sýna samspil elds og vatns. Þeir notuðu tvo liti, rauðgulan sem stendur fyrir eldmóð og skuldbindingu þeirra til að vinna saman að því að ná markmiðum sínum. Blái liturinn táknar vatn sem endurspeglar stefnu þeirra í samskiptum við viðskiptavini, að öll verkefni flæði vel og án erfiðleika þar sem þeir reyni að sjá um allt svo viðskiptavinir þeirra geti slakað á í því erfiða ferli sem framkvæmdir geta verið og andað rólega. Bræðurnir í Eldfossi efndu til keppni á netinu um hönnun myndmerkisins og fengu nokkrum dögum síðar tillögur að merkjum. Þeir völdu að lokum hönnun sem þeim þótti best og unnu hana með hönnuði þangað til lokaútgáfa merkisins, sem nú hefur fengið skráningu, leit dagsins ljós.

Mömmunni finnst gott að hafa öll börnin í iðnaðinumÞórður telur einungis upp kosti þegar hann er spurður hvernig sé að vinna með bræðrum sínum. Það sé mikill kostur að þeir séu allir meistarar í sínu fagi og það auðveldi framkvæmdir mjög. Hann segir okkur sögu af nýlegu dæmi þar sem hann var mættur til þess að laga steypt klósett sem hafði brotnað og hafði ekki verið flísalagt alla leið. Þar að auki var ekki niðurfall á baðherberginu og þegar flæddi úr klósettkassanum urðu skemmdir á parketi. Þá var Þórður ekki lengi að kalla bræður sína til, Ívar múrarameistara sem lagaði veggi og flísalagði og Andrés húsasmíðameistara sem gat lagt parketið. Móður þeirra bræðra finnst mjög þægilegt að vera með „öll börnin í iðnaðinum,“ eins og Þórður orðar það, þegar þarf að laga eitthvað í foreldrahúsum, enda sé ekki hægt að segja nei við mömmu.
Vilja byggja fjölbýlishúsÍ þessari sögu byggir enginn hús úr hálmi eða greinum heldur einungis sterkbyggð hús sem enginn úlfur getur hvæst blásið og feykt um koll. Á næstu árum hyggja þeir bræður á frekari stækkun á fyrirtækinu og er draumur þeirra að byggja fjölbýlishús. Það var einstaklega áhugavert og gaman að ná spjalli af þessum metnaðarfullu bræðrum sem stefna hátt og gera hugverkaréttinum einstaklega hátt undir höfði með því að leggja vinnu í vörumerki sitt, hönnun þess og skráningu enda er vörumerki ein verðmætasta eign fyrirtækja.
Köttur út í mýri setti upp á sér stýri úti er ævintýri.
Vörumerki V0132833 skráð 15. aprílSótt var um skráningu orð og myndmerkisins merkisins Eldfoss í nóvember 2023, það var birt til skráningar 15. febrúar og skráð 15. apríl síðastliðinn í flokkum 19 og 37 m.a. fyrir verk eftir múrara, pípulagningaþjónustu, þjónustu trésmiða og byggingastarfsemi.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarinsSkráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki.
