Fréttir

Vinnuregla innan Ölgerðarinnar að skrá öll vörumerki

Eiríkur Sigurðsson01. október 2024Vörumerki
Davíð Sigurðsson Collab (1)

Collab vörulínan er afrakstur samstarfs Ölgerðarinnar og Feel Iceland. Um er að ræða sykurlausa drykki með kollageni sem unnið er úr íslensku fiskroði og koffíni. COLLAB vörurnar hafa notið mikilla vinsælda hér á landi og útflutningur er hafinn.

Árangur fram úr björtustu vonum

Að sögn Davíðs Sigurðssonar, vörumerkjastjóra Collabs, komu fyrstu Collab vörurnar á markað árið 2019 og viðtökurnar fóru strax fram úr björtustu vonum, enda megi segja að ákveðið gat hafi verið á markaðnum fyrir innlenda koffín-drykki. Collab hefur verið skráð vörumerki hjá Hugverkastofunni allt frá árinu 2018. Davíð segir að nafnið Collab vísi til kollagens og ensku orðanna yfir samstarf (collaboration) og rannsóknastofur (laboratores). „Það skiptir okkur miklu máli að skrá vörumerki til þess að vernda þau. Þetta er bara vinnuregla innan Ölgerðarinnar að við skráum öll merki sem við stofnum og eigum.“

Óprúttnir aðilar sáu sér leik á borði

Nú þegar fyrirtækið er að taka fyrstu skrefin í útflutningi hefur vörumerkið verið skráð erlendis, m.a. hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) og á fleiri Vesturlöndum. En það kom smávegis babb í bátinn. „Það kom í ljós að óprúttnir aðilar höfðu séð sér leik á borði að skrá vörumerkið, þar sem að vörumerkið var farið að vekja athygli erlendis áður en eiginlegur útflutningur hófst.“ Davíð segir að fyrirtækinu hafi þó tekist að sýna fram á eignarrétt Ölgerðarinnar á vörumerkinu og að viðkomandi aðilar hafi aðeins verið tækifærissinnar, eða svokölluð „vörumerkjatröll“. Nú sé hins vegar allt að koma heim og saman og þá sé það bara fulla ferð áfram.

Meira um skráningu vörumerkja