Fréttir

„Vörumerki Mosfellsbæjar“ – Afturelding er skráð vörumerki janúarmánaðar

Jóhann Skúli Jónsson31. janúar 2025Vörumerki
Vörumerki Fyrir Vefinn

Frá Mosfellsbæ koma margir merkir Íslendingar á borð við Halldór Kiljan Laxness og Steinþór Hróar Steinþórsson og þaðan eru margar gæðavörur eins og Álafosslopi og kryddbrauð. Um aldamótin varð staðurinn þekktur sem pizzabær og fyrir að þar væri Miller-time á mánudögum. Á undanförnum árum hefur fólk streymt í bæinn og telur bærinn núna hátt í 14.000 íbúa og er sjöunda stærsta bæjarfélag landsins. Sjálfsmynd bæjarins einkennist af alltumlykjandi krafti, snerpu, úthaldi og endingu. Þar kemur Afturelding, íþróttafélag bæjarins, sterkt inn.

UMFA eða Ungmennafélagið Afturelding var stofnað árið 1909 til þess að skapa vettvang fyrir félagslega samveru fólks á sveitabæjunum þar sem heldur langt þótti vera á milli þeirra til þess að vera stöðugt að skreppa. 116 árum síðar, í janúar 2025, er orð- og myndmerki Aftureldingar skráð vörumerki mánaðarins hjá Hugverkastofunni.

Áhangendur Aftureldingar hvetja sitt lið.
Áhangendur Aftureldingar hvetja sitt lið.

Aukin umsvif

„Það má segja að Afturelding sé vörumerki Mosfellsbæjar og ein verðmætasta eign Mosfellinga,” segir Einar Ingi Hrafnsson, framkvæmdastjóri Aftureldingar, félagsins þar sem hann ól manninn og gerði hann til að mynda að atvinnumanni í handbolta. Einar tók við stöðu framkvæmdastjóra í maí síðastliðnum. „Bakgrunnur minn er í sölu- og markaðsmálum og þetta var eitt af því fyrsta sem ég skoðaði þegar ég tók við í fyrra. Það kom mér á óvart að sjá að merkið væri ekki skráð og ég taldi mikilvægt að ganga í að sækja um skráningu á merki félagsins.“

Fólksfjölgun í Mosfellsbæ hefur augljóslega haft það í för með sér að starfsemi Aftureldingar hefur aukist. Áður fyrr var talið að krakkar úr Mosó væru annað hvort góðir í skóla eða góðir í handbolta en í dag heldur félagið úti deildum og meistaraflokkum í handbolta, fótbolta og blaki auk þess að halda úti barna- og unglingastarfi í badmintoni, fimleikum, frjálsum íþróttum, hjólreiðum, karate, sundi, taekwondo og nýlega bættist körfubolti við. Einar segir að þetta sé ekki síður ástæða til þess að hlúa þurfi vel að vörumerki félagsins. „Þegar ég var að alast upp var þetta sennilega 6.000 manna bæjarfélag sem er meira en helmingi minna heldur í dag. Núna eru iðkendur í Aftureldingu í kringum 2.000 börn- og ungmenni á aldrinum 3-18 ára, sem öll iðka og alast upp í sinni íþrótt með vörumerkið Aftureldingu á brjóstinu. Eitt af nýlegum verkefnum hjá okkur var að endursemja við styrktaraðila fyrir barna- og unglingastarf félagsins. Okkar styrkleiki er að búningarnir eru eins í fótbolta, handbolta, blaki og körfubolta og því gefur að skilja að vörumerkið Afturelding er í sýningu inni á heimilum og inni í skólastofum bæjarins á hverjum einasta degi og á íþróttamótum sem fara fram út um allt land. Þarna er samspil styrktaraðila og vörumerkis Aftureldingar mjög gott,“ segir Einar.

Sjónvarpsþættirnir Afturelding

Auglýsinga fyrir sjónvarpsþættina Aftureldingu

Árið 2023 var sýnd sjónvarpsþáttasería á RÚV sem bar heitið Afturelding. Þættirnir fjölluðu um útbrunna handboltastjörnu af gamla skólanum sem neyðist til að taka við þjálfun kvennaliðs Aftureldingar. Einar segir að þættirnir hafi vakið mikla lukku og jákvætt umtal í Mosfellsbænum og innan félagsins. Félagið hafi fengið skemmtilega athygli og sögusagnir um nýja seríu af þáttunum gleðja Einar. „Við fögnum auðvitað allri umfjöllun sem hefur jákvæð áhrif á okkar starf. Það var því sjálfgefið að leggja blessun okkar yfir þessa þætti. Ástæðan fyrir því að við erum að skrásetja vörumerkið snýr heldur ekki að því að setja upp einhverja varnarveggi heldur meira til þess að hafa spilin á okkar hendi.“

Samstarf við KALEO og besta deildin

Síðasta haust tryggði karlalið Aftureldingar sér tilverurétt í Bestu deild karla í fótbolta í fyrsta skipti í sögunni. Mosfellsbær var lengi vel stærsta bæjarfélag landsins sem ekki hafði átt lið í efstu deild karla í knattspyrnu en liðið í ár bætti úr því með sigri í umspilsleik gegn Keflavík. Besta deildin er vinsælasta íþróttadeild landsins og er því óhætt að segja að verið sé að skrifa nýjan kafla í sögu Aftureldingar. Einar segir að þessu fylgi mikið umstang, enda kröfur og leyfiskerfi KSÍ fyrir félög í efstu deild strangara en aðrar deildir. En þetta sé fyrst og fremst stórskemmtilegt ferli sem sé til þess fallið að vekja enn meiri athygli á félaginu.

Undanfarin ár hafa knattspyrnulið Aftureldingar verið með merki hljómsveitarinnar KALEO framan á búningum sínum. „Jökull söngvari er harður Aftureldingarmaður og spilaði fótbolta í yngri flokkunum með Aftureldingu“ segir Einar en Jökull spilaði einmitt í yngri flokkunum með Magnúsi Má Einarssyni, þjálfara liðsins. Einar segir að það hafi verið fyrir tilstilli Magnúsar Más sem þetta samstarf komst á. „Þetta samstarf hefur gefið okkur mikið á hinum ýmsu sviðum og er virkilega skemmtilegt. Án þess að hafa farið í einhverjar söluherferðir erum við að selja nokkrar treyjur í mánuði til erlendra aðila. Nú þegar karlaliðið er komið í Bestu deildina verða gerðir nýir búningar og aldrei að vita nema við spýtum í lófana með kynningu á þeim erlendis“.

Mosfellingur ársins 2023, Dóri DNA, sagði að það eina sem fólkið hans í Mosó hefði væri trúin. Trúin flytur fjöll og í dag á íþróttafélag bæjarins, frá Dalnum, upp í Byggðir, niður í Leirutanga, skráð vörumerki. Áfram, áfram, Afturelding!

Vörumerki V0135738 og V0135743 skráð 15. janúar

Sótt var um skráningu orðmerkis og orð- og myndmerkis Aftureldingar í ágúst og þau voru skráð 15. janúar síðastliðnum í flokkum 25, 28, 38 og 41, m.a. fyrir íþróttatreyjur og íþróttaskó, framleiðslu á tónlist, skipulagningu á íþróttakeppnum o.fl.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar. Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er gott vörumerki út frá sjónarmiðum hugverkaréttar, það þarf að hafa skýr sérkenni og gott aðgreiningarhæfi, það má ekki vera lýsandi né má vera hætta á að því verði ruglað við önnur merki og síðast en ekki síst þarf að hafa á bak við sig skemmtilega sögu.