Fréttir
„Vörumerkið er dýrmætasta eign fyrirtækisins“

Vörumerkið 66°Norður er án efa eitt þekktasta vörumerki landsins og eitt fára íslenskra vörumerkja sem náð hefur eftirtektarverðum árangri á alþjóðlegum neytendamarkaði. Sögu þess má rekja næstum 100 ár aftur í tímann eða til ársins 1926 þegar Hans Kristjánsson stofnaði Sjóklæðagerðina á Suðureyri við Súgandafjörð. Markmið hans var að framleiða endingargóðan og sérhæfðan vinnufatnað fyrir íslenska sjómenn.
Bjarney Harðardóttir, framkvæmdastjóri og meðeigandi 66°Norður, segir að vörumerkið standi fyrir endingu og gæði en líka fyrir ákveðna íslenska menningu og nauðsyn þess að takast á við óblíð náttúruöflin. Saga fyrirtækisins spanni uppgangstíma á Íslandi og vörur fyrirtækisins hafi þróast frá því að vera hlífðarfatnaður fyrir íslenska sjómenn, yfir í björgunarsveita-, útivistar og vinnufatnað yfir í að vera hversdagsfatnaður fyrir Íslendinga sem eru bara úti að bíða eftir strætó. Merkið er trútt uppruna sínum og það má enn fá appelsínugula regnstakkinn sem Íslendingar klæðast jafnt á sjónum, við smalamennsku og á Þjóðhátíð í Eyjum.
„Fyrirtækið hefur skráð vörumerki sín á lykilmörkuðum um allan heim. Slík vernd er nauðsynleg til að koma í veg fyrir að aðrir geti nýtt sér þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í uppbyggingu vörumerkisins, orðspor þess, gæði og áherslu á sjálfbærni.“
Bjarney segir að fyrirtækið leggi eðlilega mikla áherslu á vörumerkjavernd og hafi skráð vörumerki sín á lykilmörkuðum um allan heim. Slík vernd sé nauðsynleg til að viðhalda markaðshlutdeild og koma í veg fyrir að aðrir geti nýtt sér þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í uppbyggingu vörumerkisins, orðspor þess, gæði og áherslu á sjálfbærni.
„Vörumerkið hefur gegnt lykilhlutverki í allan þennan tíma,“ segir hún og bætir við að það sé nauðsynlegt á neytendavörumarkaði að vernda vörumerki sín og að í því sé falin mikil fjárfesting sem þurfi að huga vel að. „Við eigum vörumerkið 66°Norður og 66°North, 66°N, kríuna og fjölmörg önnur vörumerki á hinum ýmsu mörkuðum.“
Lokaskilaboð Bjarneyjar eru skýr: „Vörumerkið er dýrmætasta eign fyrirtækisins. Þú getur tekið allt annað í burtu en í vörumerkinu kemur allt saman: hvað þú stendur fyrir, gæðin, loforðin til viðskiptavina og áralöng saga fyrirtækisins.“
Meira um vörumerki
Sækja um skráningu vörumerkis
