Fréttir

Vörumerkið Nike efst í huga landsmanna

NIKE (1)

Nike er það vörumerki sem flestir landsmenn nefna þegar þeir eru spurðir hvaða vörumerki þeim detti fyrst í hug. Í könnun sem Maskína gerði fyrir Hugverkastofuna 10.-15. janúar síðastliðinn nefndu 14,3% aðspurðra Nike. Í öðru sæti varð Coca-Cola sem 12,2% nefndu, þá Apple (3,8%), Pepsi (3,6%) og IKEA (3,3%).

Fjögur íslensk vörumerki eru meðal þeirra tíu vörumerkja sem oftast voru nefnd. Það eru: 66° Norður (3,0%), Bónus (2,5%), Mjólkursamsalan (1,7%) og ELKO (1,7%).
Þó nokkur munur var á svörum fólks eftir kyni og aldri. Til dæmis nefndu karlar oftar Coca-Cola (14,5%) en Nike (11,6%) en konur hins vegar nefndu Nike mun frekar (17,7%) en Coca-Cola (9,8%). Nike var líka mun oftar nefnt af yngstu svarendum 18-29 ára (19,5%) en Coca-Cola (7,3%).

NIKE Innovative C.V. fékk orðmerkið NIKE og myndmerki skráð í janúar 1979, m.a. fyrir töskur, íþróttaskó, íþróttabúninga, leikspil og leikföng og leikfimi- og íþróttavörur.
Í svipaðri könnun sem gerð var fyrir Hugverkastofuna fyrir ári síðan voru MS og tengd vörumerki oftast nefnd en kannanirnar eru ekki sambærilegar milli ára þar sem spurningunni var breytt lítillega frá því í fyrra. Nú var einfaldlega spurt: „hvaða vörumerki dettur þér fyrst í hug?“ og aðeins var hægt að nefna eitt vörumerki.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram á netinu. Svarendur eru 18 ára og eldri af öllu landinu. Við úrvinnslu voru gögnin vegin til samræmis við tölur Hagstofunnar þannig að hópurinn sem svarar endurspeglar þjóðina út frá kyni, aldri, búsetu og menntun.

Skráning á vörumerki veitir eiganda þess einkarétt til að nýta merkið fyrir ákveðnar vörur og þjónustu. Algengustu vörumerki eru orðmerki og myndmerki en hægt er að fá margar gerðir vörumerkja skráð, t.d. hljóðmerki, litamerki og staðsetningarmerki. Einfalt er að sækja um skráningu vörumerkja á vef Hugverkastofunnar.